Lyfjakostnaður TR jókst um 14% milli ára Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. júlí 2008 10:34
Kostnaður Tryggingastofnunar ríkisins vegna lyfja á fyrsta þriðjungi ársins jókst um 14% miðað við sama tíma í fyrra, eða um 308 milljónir króna. Þetta kemur fram á heimasíðu stofnunarinnar. Enn fremur segir þar að kostnaður TR vegna lyfja hafi numið 2.583 milljónum króna á fyrsta þriðjungi ársins. Skýringar kostnaðaraukningarinnar eru að mati Tryggingastofnunar einkum tvær, aukin lyfjanotkun og lágt gengi íslensku krónunnar, en verð meirihluta lyfja er skráð í evru og danskri krónu. Lyfjanotkun hefur, að sögn TR, aukist um 8% sé miðað við fjölda skilgreindra dagsskammta en kostnaður stofnunarinnar hefur aukist mest vegna flogaveikilyfja, geðrofslyfja, þunglyndislyfja og lyfja við ofvirkni. Guðrún Gylfadóttir, deildarstjóri lyfjadeildar Tryggingastofnunar, segir aukna lyfjanotkun eðlilega með tilliti til hækkandi aldurs þjóðarinnar. Þó hafi aukningin verið heldur meiri en fyrir fram hafi verið gert ráð fyrir. „Notkun blóðþrýstingslyfja hefur sérstaklega aukist,“ segir Guðrún og bætir því við að einnig megi skýra hina auknu notkun með því að verið sé að nota geðrofslyf í auknum mæli til meðferðar á þunglyndi og flogaveikilyf við taugaverkjum.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira