Geir ósammála Ingibjörgu um ESB og fortíðina 13. október 2008 15:19
Geir H. Haarde forsætisráðherrra er ósammála Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra um að það jafngildi því að fara aftur til fortíðar að vilja ekki ganga í ESB. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, á Alþingi í dag. Kristinn benti á grein Ingibjargar Sólrúnar í Morgunblaðinu í dag. Þar segir ráðherra að varnir íslensks efnahagslífs felist til skamms tíma í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og til lengri tíma í aðild að Evrópusambandinu, upptöku evru og bakstuðningi Evrópska seðlabankans. Hinn kostinn sagði Ingibjörg vera að pakka í vörn og hverfa til þess tíma sem var fyrir árið 1994. Kristinn H. Gunnarsson spurði hvernig ríkisstjórninni dytti í hug að það væri málefnalegt innlegg við núverandi aðstæður að halda því fram að þeir sem ekki styddu aðild að ESB væru talsmenn þess að hverfa aftur til fortíðar. Geir H. Haarde forsætisráðherra svaraði því neitandi og sagði: „Þar urðum við loksins sammála." Það jafngilti því ekki að vilja fara aftur til fortíðar að vilja ekki ganga í ESB. Kristinn sagði ESB-aðild vissulega hlut sem þyrfti að ræða en henni fylgdu bæði kostir og gallar. Þá benti Kristinn á að eitt vissu menn, að aðild að Evrópusambandinu nú hefði engu breytt fyrir Íslendinga. Evrópski seðlabankinn tryggði ekki bankana og ríkisstjórnir Evrópusambandslandanna reyndu nú hver og ein að verja sitt bankakerfi. Aðild að ESB hefði heldur ekki tryggt okkur evruna því til þess að taka hana upp þyrfti ákveðin skilyrði. Sagði Kristin það ekki málefnalegt að setja hlutina fram á þann hátt sem utanríkisráðherra hefði gert.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira