Krabbameinslæknir varar við farsímanotkun barna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 25. júlí 2008 11:41
Umræðan um heilsuvernd og farsímanotkun hefur verið rifin upp með hvelli eftir að dr. Ronald B. Herberman við krabbameinsrannsóknarstöðina í Pittsburgh sendi samstarfsfólki sínu pistil um að börn skyldu eingöngu nota farsíma í ýtrustu neyðartilfellum. Þetta útskýrði hann með því að viðkvæm og óþroskuð líffæri þeirra væru einkar viðkvæm fyrir rafsegulbylgjum. Enn fremur benti Herberman á að fullorðnum væri hollara að nota þráðlausan búnað í stað þess að halda símanum við eyrað eins og mikið var í umræðunni fyrir nokkrum árum. Hann gengur þó mun lengra en það og tekur fólki vara við því að sofa með farsíma sína nálægt sér, svo sem á náttborðum, auk þess sem hann telur ekki ráðlegt að fólk beri símana á sér, nálægt líkamanum, allan daginn. Dr. Herberman er virtur sérfræðingur á sviði krabbameinsrannsókna og hafa varnaðarorð hans hlotið verðskuldaða athygli, bæði vegna þeirrar staðreyndar og eins þess að kenningar hans stangast á við niðurstöður fjölda rannsókna sem ekki fundu nein tengsl milli krabbameins og farsímanotkunar. „Upp á síðkastið hef ég fundið töluvert efni sem tengir langtímafarsímanotkun við ýmis áhrif á mannslíkamann, þar á meðal krabbamein," segir Herberman sem lætur engan bilbug á sér finna. „Þrátt fyrir að gögnin séu umdeilanleg er ég sannfærður um að þau nægi til að gefa út almenna viðvörun um að fólk sé meðvitað um hvernig það notar símann," bætir hann við og bendir á að Kent German, starfsbróðir hans sem hefur rannsakað geislun frá farsímum ítarlega, ráðleggi fólki hiklaust að velja sér að minnsta kosti síma með lágu SAR-gildi, en það er mælikvarði á styrk rafsegulsviðsins sem umlykur símann. CNET greindi frá.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira