Bregðast við kreppunni með skattahækkunum og -lækkunum 24. nóvember 2008 13:04 MYND/AP
Bresk stjórnvöld hyggjast hækka hátekjuskatt en lækka virðisaukaskatt í viðleitni sinni til að bregðast við yfirstandandi fjármálakreppu. Bretar þurfa að taka tuga milljarða punda lán á næstu árum til þess að bregðast við kreppunni og örva einkaneyslu. Fram kemur á fréttavef BBC að virðisaukaskattur verði lækkaður úr 17,5 prósentum í 15 prósent og þá verða tilteknar skattaendurgreiðslur framlengdar. Til þess að standa undir auknum lántökum stendur svo til að hækka hátekjuskatt um fimm prósentustig, í 45 prósent, eftir næstu kosningar haldi Verkamannaflokkurinn völdum. Nær þetta til þeirra sem eru með yfir 150 þúsund pund á ári í laun. Reiknað er með að Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, kynni þessi áform stjórnvalda eftir hádegið ásamt því að fara yfir hvernig lán stjórnvalda verði endurgreidd á næstu árum. Gordon Brown forsætisráðherra sagði í ræðu hjá Samtökum iðnaðarins í Bretlandi í morgun að stjórnvöld yrðu að bregðast hratt við breyttum aðstæðum. Koma þyrfti í veg fyrir gjaldþrot góðra fyrirtækja sem hefði í för með sér minni hagvöxt, erfiðari fjárlagagerð og hugsanlega hærri skatta. Hann vildi ekki endurtaka mistök fyrri ríkisstjórna sem ekki hefðu gripið til aðgerða gegn niðursveiflu í tæka tíð og því lengt og dýpkað kreppurnar.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira