Innlent

Áttatíu kaupsamningum þinglýst í vikunni

MYND/Vilhelm

Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu í liðinni viku reyndust 80 talsins, þar af 66 um eignir í fjölbýli. Er það svipað og meðaltal síðastliðinna tólf vikna en það er 75 samningar.

Heildarveltan í liðinni viku var 2,1 milljarður og meðalupphæð á samning reyndist 26,6 milljónir króna. Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Akureyri og fjórum á Árborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×