Nánast útilokað að seinagangur í nauðgunarmálum endurtaki sig 26. september 2008 18:57
Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, segir nánast útilokað að sá seinagangur í rannsókn sem varð til þess að dæmdur nauðgari fékk vægari dóm í Hæstarétti geti endurtekið sig. Maðurinn var kærður fyrir nauðgun árið 2003. Hann neitaði sök en rannsókn á lífsýnum leiddi sekt hans í ljós. Hann var þá búinn að yfirgefa landið og í stað þess að gefa út handtökuskipun lét lögreglan nægja að spyrjast fyrir eftir honum hjá lögregluyfirvöldum ytra. Eins og fram kom í fréttum stöðvar tvö í gær liðu fjögur ár þangað til maðurinn var loks færður til skýrslutöku í Danmörku og í gær var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsis í Hæstarétti. Vegna seinagangs í rannsókn lögreglu þarf maðurinn hins vegar aðeins að afplána þrjá af þessum fimmtán mánuðum. „Það er réttilega fundið að því að málið var of lengi í meðferð og við tökum það að sjálfsögðu alvarlega. En það sem skiptir meira máli er að eftir að nýtt skipulag tók gildi hér 1. janúar 2007 þá er búið gera ráðstafanir sem fyrirbyggja að svona á ekki að geta gerst aftur," segir Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri. „Eitt af því sem við gerðum strax var sjá til þess að þessi málaflokkur væri í sérstakri meðferð og stofnuðum sérstaka deild til þess. Það leiðir til þess að öll tiltæk úrræði eru nú notuð," segir Hörður ennfremur. Aðspurður hvort lögreglan geti dregið einhvern lærdóm af þessum dómi segir Hörður: „Ekki annað en það að það er aukin pressa á að það séu notuð öll úrræði. Það er hægt að gefa út handtökuskipun og lýsa eftir mönnum og það er það sem við gerum í dag."
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira