Átöppunarverksmiðja gangsett að Hlíðarenda 26. september 2008 21:33 Hér sést í hnakka þeirra Jóns Ólafssonar og Össurar Skarphéðinssonar í þann mund sem þeir gangsetja verksmiðjuna.
Icelandic Water Holdings ehf. sem síðastliðin þrjú ár hefur starfsrækt átöppunarverksmiðju fyrir Iceland Glacial vatnið í Þorlákshöfn, gangsettu í dag nýja verksmiðju í landi Hlíðarenda í Ölfusi. Það voru stofnendur Icelandic Glacial, þeir Jón Ólafsson og Kristján Ólafsson, sem ræstu fyrri framleiðslulínu verksmiðjunnar formlega í dag ásamt Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráherra. Verksmiðjan er um 6.700 fermetrar að stærð og mun í fyrri áfanga anna átöppun um 100 milljón lítra á ári, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. „Hún er búin sérstöku orkustjórnunarkerfi til að halda áhrifum á umhverfi og náttúru í lágmarki en Iceland Glacial vatnið er fyrsta vatnið á heimsmarkaði sem hlýtur viðurkenningu The CarbonNeutral Company fyrir algjöra kolefnisjöfnun vegna bæði framleiðslunnar og dreifingarinnar auk annarrar starfsemi Icelandic Water Holdings," segir einnig. Þá segir að Iceland Glacial vatnið hafi fengið margvíslegar viðurkenningar fyrir afdráttarlaus gæði sín og hreinleika. „Talið er að um 50 þúsund vatnsverksmiðjur séu starfandi í heiminum en einungis um 170 þeirra skarta svokallaðri NSF viðurkenningu sem er skammstöfun fyrir National Sanitation Foundation. Jafnframt hafa umbúðir vatnsins vakið mikla athygli og hlotið ýmis verðlaun fyrir bæði útlit og gæði. Vatnsból verksmiðjunnar myndaðist í miklum eldsumbrotum fyrir um 4.500 árum. Hraunveggir umlykja vatnið á þrjá vegu en til suðurs streymir það óbeislað til sjávar í magni sem myndi anna tvöfaldri heimsneyslu vatns á flöskum, sem um þessar mundir er um 200 milljarðar lítra á ári. Full afköst hinnar nýju verksmiðju verða um 200 milljónir lítra á ári. Framleiðslusalir verksmiðjunnar verða hvor um sig á tvö þúsund fermetrum. Lagerhúsnæði verður einnig á tvö þúsund fermetrum og 700 fermetrar verða nýttir fyrir skrifstofur og tæknirými.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Fleiri fréttir Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sjá meira