Ósátt við niðurstöðu héraðsdóms 26. september 2008 14:01
Lögmaður landeiganda að Skálmholtshrauni við Þjórsá er ekki sáttur við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem landeigandinn höfðaði vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um það hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Héraðsdómur sýknaði í morgun ríkið og Landsvirkjun af kröfum landeigandans um að viðurkennt yrði með dómi að eignarréttur ríkisins á vatnsréttindum í Þjórsá í landi Skálmsholtshrauns væri niðurfallinn. Þá hafði landeigandinn fram þrjár aðrar kröfur til vara sem ýmist var vísað frá eða ríkið og Landsvirkjun sýknuð af. Christiane Bahner, lögmaður landeigandans, segir málið hafa verið höfðað þar sem landeigandinn hafi ekki talið það geta staðist að íslenska ríkið ætti vatnsréttindin en þau öðlaðist ríkið með svokölluðum Títansamningum árið 1952. Landeigandinn væri á móti áformunum um Urriðafossvirkjun vegna hugsanlegra áhrifa virkjunarinnar á land hans. Christiane segist sérlega ósátt við að þrautaþrautavarakröfu landeigandans hafi verið vísað frá en hún snerist um að vatnsréttindin heimiluðu ekki byggingu Urriðafossvirkjunar. Hún segir landeigandann hafa mikla lögvarða hagsmuni tengda framkvæmdinni því stíflugarður virkjunarinnar liggi inn á land hans. Enn fremur sé vatnshæð Heiðarlóns, lóns Urriðafossvirkjunar, í sömu hæð og þak húsanna í landi Skálmholtshrauns og húsin standi nokkur hundruð metra frá lóninu. Landeigandinn hafi efasemdir um staðsetningu lónsins í ljósi þess að þetta sé eitt virkasta jarðskjálftasvæði landsins. Þá óttist landeigandinn að stíflugarðurinn haldi ekki vatninu þannig að grunnvatnsstaða muni hækka og landið allt verði að mýri. Christiane hafði nýlokið við að ræða við skjólstæðing sinn um dóminn þegar Vísir náði tali af henni. Sagði hún að landeigandinn hefði ekki tekið ákvörðun um það hvort málinu yrði skotið til Hæstaréttar. Christiane segir að ef Hæstiréttur komist að sömu niðurstöðu hafi það fordæmisgildi fyrir aðra landeigendur við Þjórsá sem standi í svipuðum deilum við ríkið.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira