Forsvarsmönnum Glitnis var stillt upp við vegg 29. september 2008 18:38
Seðlabankinn stillti forsvarsmönnum bankans upp við vegg segir stjórnarformaður Glitnis. Seðlabankastjóri fullyrðir að Glitnir hefði orðið gjaldþrota ef ríkið hefði ekki komið til hjálpar, lagt til 84 milljarða af gjaldeyrissjóði landsmanna og eignast 75 prósenta hlut í bankanum. Hlut sem ríkið keypti á genginu fimm og varð til þess að markaðsvirði bankans rýrnaði um rúmlega 60 prósent. Forsvarsmenn Glitnis höfðu samband við Seðlabanka Íslands í síðustu viku vegna vandræða og úr varð að ríkið eignaðist 75 prósenta eignahlut í bankanum og reiða fram 84 milljarða. Gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans er nýttur til kaupanna og minnkar hann því sem þessari upphæð nemur. Þá sögðu bæði Davíð Oddssson og Lárus Welding, forstjóri Glitnis, að um skammtímalauafjárvanda væri að ræða sem rekja mætti til falls bandaríska bankans Lehman Brothers. Þó nokkuð ósamræmi er í svörum seðlabankastjóra og viðskiptaráðherra, og svo ráðamanna bankans um mikilvægi þess að Seðlabankinn greip inn í. Stjórnarformaður Glitnis vill þó meina að vel hefði verið hægt að fara aðra leið til að bjarga bankanum í viðtali við Sindra Sindrason í dag. Stjórnvöld í Bandaríkjunum ákváðu í síðustu viku að stofnaður yrði sjóður til að leysa þau vandræði sem komin eru upp hjá bönkum þar í landi og sú ákvörðun er enn til umræðu í þinginu vestra. Þar gerast hlutirnir ekki í skjóli nætur eins og á Íslandi. Við Seðlbankann í nótt voru teknar myndir af bifreið. Undir stýri sat seðlabankastjóri, forsætisráðherra var farþegi og fjármálaráðherra var farþegi í aftursætinu. Hér gerast hlutirnir líka mun hraðar og athygli vekur að í viðtali við Viðskiptablaðið í dag kemur fram að viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson, yfirmaður bankamála á Íslandi, fékk fyrst veður af málinu á föstudag. Á huldu hversu lengi ríkið muni halda í þennan 75 prósenta eignahlut í Glitni, né heldur hvernig verður staðið að sölu hlutarins þegar að því kemur.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira