Hlerunarbúnaður í tehitunartæki drottningar? 25. nóvember 2008 13:00 MYND/Reuters
Forláta tehitunartæki sem Rússar gáfu Bretadrottningu hefur verið fjarlægt úr Balmoral-höll vegna gruns um að í því sé hlerunarbúnaður. Það er heldur seint í rassinn gripið hjá bresku leyniþjónustunni að færa hinn rússneska samovar úr Balmoral-höll núna, því það eru liðin tuttugu ár síðan rússneskt fimleikalið gaf drottningunni hann. Ef rétt reynist að þarna leynist hlerunarbúnaður hafa Rússar getað hlerað samtöl drottningarinnar við forsætisráðherra sína, erlenda þjóðhöfðingja og eigin fjölskyldu. Starfsmaður konungsfjölskyldunnar sagði að þetta tehitunartæki hefði alltaf verið dálítið skrýtið fyrirbæri. Víralagnir í því hefðu verið eins og úr skriðdreka úr síðari heimsstyrjöldinni. Af einhverjum ástæðum var tækið hins vegar í miklu uppáhaldi hjá Elísabetu drottningarmóður sem kom því fyrir í horni móttökusalar og sýndi það oft gestum. Fyrrnefndur starfsmaður sagði að nýlega hefðu útsendarar leyniþjónustunnar komið til Balmoral með nýjustu græjur til þess að finna hlerunartæki. Tehitunartækið hafi þá strax verið fjarlægt og tekið til rannsóknar.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Sjá meira