Fleiri hringja út af fjárhagsvandræðum 8. október 2008 12:46
Fleiri hringja í Hjálparsíma Rauða krossins en áður. ,,Við finnum fyrir auknum hringingum í tengslum við fjármálavanda fólks og kvíða út af því," segir Elfa Dögg Leifsdóttir, verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins 1717. ,,Flestir eru að leita eftir einhverjum lausnum og við getum bent á það sem til staðar er. Við erum auðvitað ekki sérfræðingar í fjármálaráðgjöf en við erum til staðar og veitum virka hlustun. Svo eru aðrir sem vilja blása út og fá hlustun en sálrænn stuðningur er okkar sérsvið," segir Elfa og bætir við að Hjálparsíminn hafi ekki töfralausnir við fjárhagsvandræðum frekar en ráðamenn þjóðarinnar. Elfa segir að fólk sem hringi reglulega í Hjálparsímann og er veikt fyrir, jafnvel með þunglyndi eða geðraskanir, hringi oftar þessa dagana og líði afar illa. ,,Okkar hlutverk er að róa fólk niður og reyna að benda á jákvæð atriði. Hver og einn þarf að snúa sér að sínum þjónustufulltrúa. Það eru mjög fá tilvik þar sem fólk er komið á barm örvæntingar," segir Elfa. Aðspurð hvort starfsfólk Hjálparsímans hafi undirbúið sig sérstaklega til að taka við símtölum fólks með fjárhagsáhyggjur segir Elfa að svo sé. ,,Við stóðum fyrir átaksviku í vor í tengslum við fjárhagsvandamál fólk og þá tókum við saman upplýsingar og endurbættum handbókina okkar." Vel gengur að manna Hjálparsímann með sjálfboðaliðum, að sögn Elfu sem fara í gegnum 40 klukkustunda þjálfun áður en þeir þeir taka til starfa. Hjálparsíminn 1717 býður upp á gjaldfrjálsa þjónustu allan sólarhringinn.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Sjá meira