Stórgræddu á að selja aðgöngumiða á Led Zeppelin 30. nóvember 2008 09:00 Mæðgurnar Hrefna Lilja og Tinna með miðann góða. MYND/Fréttablaðið/vilhelm
Mæðgurnar Hrefna Lilja Valsdóttir og Tinna Daníelsdóttir seldu á dögunum aðgöngumiða á Led Zeppelin tónleikana í Laugardalshöll 1970 á eBay. „Uppboðið var svo spennandi að ég gat ekkert einbeitt mér að náminu síðustu stundirnar sem á því stóð,“ segir Tinna, sem tók að sér að selja miðann fyrir mömmu. Tilboðin fóru stighækkandi þar til nafnlaus kaupandi í Bandaríkjunum hreppti bréfsnifsið á 537 dali, 75 þúsund kreppukrónur, takk fyrir. „Þetta kemur sér þvílíkt vel,“ segir Hrefna. Hún fékk hugmyndina að sölunni þegar hún hlustaði á morgunútvarp Rásar tvö nýlega. „Þar var Ólafur Gunnarsson í viðtali um nýju bókina sína, Dimmar rósir, og var að tala um gömlu góðu dagana sem sagan gerist á, þar á meðal Led Zeppelin-tónleikana. Hann sagðist hafa verið svo vitlaus að gefa einhverri stelpu miðann sinn og sér svo eftir því núna því hægt er að fá góðan pening fyrir þessa miða. Þá sperrti ég eyrun og mundi eftir miðanum mínum í skókassa niðri í geymslu.“ Hrefna man vel eftir Led Zeppelin tónleikunum. „Ég var rosa hrifin, en það var ekkert djamm á manni enda var ég bara 14 ára og saklaus og seinþroska fermingarstelpa. Ég fór með vinkonu minni. Tinna dóttir mín varð nú hálf hneyksluð þegar ég sagði henni frá því að okkur hefði verið hleypt einum svona ungum á þessa tónleika. En það var nú ekkert tiltökumál á þessum árum.“ drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira