Vill að öll þingmannamál fái afgreiðslu 1. október 2008 14:49 MYND/GVA
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, vill að öll frumvörp sem lögð eru fram á Alþingi fái afgreiðslu úr nefndum, hvort sem þau eru felld eða samþykkt. Þetta kom fram í ræðu hans við setningu Alþingis í dag. Sturla benti á að það hefði verið gagnrýnt að nefndir þingsins lægju á þingmannamálum og að slíkt hefði bitnað jafnt á þingmálum stjórnarþingmanna og stjórnarandstæðinga. Það væri orðið tímabært að breyta þessu og eðlilegt væri að nefndir afgreiddu öll mál úr nefnd. Þingið ætti að vera ófeimið við að fella mál sem ekki væri stuðningur við og sömuleiðis veita þeim málum brautargengi sem meirihluti væri á bak við. Sagðist hann myndu ræða þessi mál við þingflokksformenn. Með þessu ætti að treysta stöðu þingsins sem megin vettvangs pólitískrar umræðu. Alþingismönnum beri gæfa til að taka á stórum verkefnum Þá ræddi forseti Alþingis um þær breytingar sem orðið hefðu á störfum þingsins síðustu misseri og vakti sérstaka athygli á heimild til opinna nefndarfunda þar sem hagsmunaaðilar og ráðherrar gætu komið og svarað spurningum nefndarmanna. Þetta yrði þó einkum bundið við mál sem vægju þungt í þjóðmálaumræðunni.Sturla sagði enn fremur að vindurinn sem mætti alþingismönnum þegar þeir gengu á milli Dómkirkjunnar og Alþingishússinn væri á vissan hátt táknrænn fyrir þann mótbyr sem Íslendingar mættu núna. Hann vonaðist til að alþingismönnum bæri gæfa til að taka á þeim stóru verkefnum sem biðu á næstu vikum og mánuðum. Enn fremur sagði hann hug þingmanna hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra vegna veikinda hennar og að hann hefði sent henni kveðju Alþingis.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira