Mátu ekki þjóðhagsleg áhrif þjóðnýtingar Glitnis 2. október 2008 18:34
Hagfræðingar Seðlabankans mátu ekki þjóðhagsleg áhrif þjóðnýtingar Glitnis. Síðan tíðindi bárust um á mánudagsmorgun, hefur gengi krónunnar lækkað um 15 prósent og lánshæfismat ríkisins og íslensku viðskiptabankanna verið lækkað. Samkvæmt heimildum var málið í höndum bankastjórnar Seðlabankans og koma nöfn starfsmanna hagfræðisviðs bankans ekki fyrir á minnisblöðum um afleiðingar þjóðnýtingarinnar. Heimildarmaður innan stjórnarráðsins bendir á að málið sé á ábyrgð forsætisráðuneytisins. Þegar spurt var hvort nöfn hagfræðinga seðlbankans kæmu fyrir á minnisblöðum um þjóðhagsleg áhrif og áhrif á fjármálakerfið, sagði heimildarmaðurinn að margir hagfræðingar hefðu komið að málinu. Hann vildi hins vegar ekkert segja um það hverjir það hefu verið. Í samtali við fréttastofu staðfesti Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, að hvorki hann né staðgengill hans hafi tekið þátt í að meta þjóðhagsleg áhrif þjóðnýtingar Glitnis eða áhrif hennar á fjármálakerfið. Tími hafi hreinlega ekki unnist til slíks enda hafi hlutirnir gerst ansi hratt um síðustu helgi. Starfsmenn Seðlabankans sátu í hádeginu fund sem bankastjórnin boðaði óvænt til. Þar fór Davíð Oddsson yfir þær opinberu upplýsingar sem fyrir liggja um Glitnismálið og lagði áherslu á að ákvarðanir hefðu verið teknar af ríkisstjórninni en ekki Seðlabankanum.Síðan tíðindi bárust um þjóðnýtinguna, á mánudagsmorgun, hefur gengi krónunnar lækkað um 15 prósent. Lánshæfismat ríkisins og allra íslensku viðskiptabankanna hefur verið einnig lækkað og skuldartryggingaálag ríkisins rokið upp.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Fleiri fréttir Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Sjá meira