Íslensk kona auglýsir erótískt nudd á Google SB skrifar 20. júní 2008 16:47 Bodynudd.is. Auglýsir erótískt nudd á netinu. „
Það er ekkert kynlíf í boði," segir íslensk kona sem auglýsir erótískt nudd á leitarvefnum Google. Hún gagnrýnir femínista og fjölmiðla fyrir að gera starfsemi hennar tortryggilega. Konan vildi ekki koma fram undir nafni. Hún sagðist ekki treysta sér í orrarhríðina sem fylgir því að stíga út úr skápnum með starfsemi sína. Hún segist hafa lært erótískt nudd í Ástralíu og starfað um nokkurt skeið hér á landi. „Nei, þú færð enga diplómu í svona nuddi. Þetta lærir maður bara af sjálfum sér," segir konan, spurð út í það hvort hún hafi löggilt leyfi sem nuddari. Á heimasíðunni bodynudd.is getur að líta myndir af fögrum konum í erótískum stellingum. Steggjapartý eru boðin velkomin á nuddstofuna þar sem sagt er boðið upp á sauna og annan munað. Stofan er þó ekki raunveruleg. Hún er aðeins til á netinu. Í raunveruleikanum stendur konan ein á bak við starfsemina og stundar nudd sitt á gráu svæði laganna í skjóli myrkurs. „Þetta er ekki skráð eða löglegt. Ég hef gefist upp á því. Þjóðfélagið vill frekar vera með þetta underground heldur en að gefa grænt ljós á svona starfsemi. Til dæmis hringdi Fréttablaðið í mig áðan og blaðakonan sagði síðuna mína klámfengna. Klámfengna! Þetta er náttúrlega erótík og það sjá allir sem vilja sjá." Konan auglýsir erótíska nuddið á Google og segir þá auglýsingu hafa fengið mikla athygli. „Það er ekkert óeðlilegt við þetta. Eftirspurnin er mikil, bæði frá körlum og konum, og það eru engin lög sem banna manni að auglýsa." "...og ég held það sé betra að hafa þetta upp á borði í staðinn fyrir að láta Pólverjunum og Litháunum eftir markaðinn," segir nuddkonan dularfulla sem berar sig fyrir framan kúnna en kýs í fjölmiðlum að hylja sig með nafnleynd af ótta við almenningsálitið.
Mest lesið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Allt það helsta frá Ungfrú Ísland Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Fleiri fréttir Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Sjá meira