Erlent

Yfirvöld í Simbabve aflétta banni við starfsemi hjálparsamtaka

Robert Mugabe, forseti Simbabve.
Robert Mugabe, forseti Simbabve. Mynd/AP

Yfirvöld í Simbabve hafa aflétt banni við hjálparstarfsemi samkvæmt ríkisútvarpsstöð þar í landi. Var bannið sett á fyrir forsetakosningarnar sem voru þar í landi í lok júni.

Ástæðan var sú að ríkisstjórn Robert Mugabe forseta Simbabve taldi hjálparsamtök vera í kosningaherferð fyrir forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar, Morgan Tsvangirai.

Talið er að ástæðan fyrir afléttun bannsins nú sé hún örvæntingafulla staða sem sé í Simbabve bæði í efnahag og stjórnmálum landsins.

Viðræður um stjórnarsamstarf hófst aftur í dag í Suður-Afríku á milli stjórnmálaflokks Mugabe, Zadu-PF og beggja fylkinga stjórnarandstöðuflokksins MDC. Hafa viðræður staðið yfir í meira en mánuð án mikils árangurs.

Dómsmálaráðherra Simbabve, sem fer fyrir viðræðunum fyrir hönd Zanu-PF segir viðræður eigi þurfa að halda áfram þar sem samningur liggi þegar fyrir, aðeins þyrfti að undirrita hann. Tsvangirai hefur hins vegar lýst því yfir að hann muni ekki skrifa undir þann samning en sé tilbúinn að halda viðræðunum áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×