Engin svör fást um hversvegna Ísland var haft útundan 26. september 2008 18:39
Bandaríski seðlabankinn taldi ekki ástæðu til að hafa Seðlabanka Íslands með þegar gerðir voru gjaldmiðlaskiptasamningar við seðlabanka allra hinna Norðurlandanna. Engin skýring fæst hversvegna Ísland var haft útundan.Fréttir fyrr í vikunni, um að seðlabankar hinna Norðurlandanna fjögurra hefðu allir gert tvíhliða gjaldmiðlasamning við bandaríska seðlabankann, vöktu spurningar um hversvegna íslenski Seðlabankinn hefði ekki fylgt með. Hefur gengislækkun íslensku krónunnar undanfarna daga meðal annars verið rakin til þessa og efnahagsspekingar spurt hvort verið gæti að Seðlabanki Íslands hafi ekki séð ástæðu til að styðja við íslensku krónuna með slíkum samningi. Seðlabanki Íslands sá sig nú síðdegis knúinn til að senda út yfirlýsingu þar sem hann segist hafa átt viðræður við Seðlabanka Bandaríkjanna á undanförnum vikum. Ekki hafi verið taldar ástæður eða efni til þess að gera á þessu stigi samning við Seðlabanka Íslands. Þótt þessi tilkynning bankans sé óljós um hver hafi ekki viljað gera samningin fengust þær skýringar úr bankanum síðdegis að það hafi verið seðlabanki Bandaríkjanna sem ekki vildi hafa Ísland með.Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra kvaðst nú síðdegis vilja sem minnst tjá sig um það sem Seðlabankinn væri að gera. Hann væri örugglega að gera það sem hann teldi best. Hann kvaðst hafa rætt þetta mál lítillega við seðlabankamenn en vildi ekki tjá sig um þau samskipti. Spurður hvort það væri ekki óþægilegt fyrir Ísland að það skyldi ekki hafa verið haft með sagði Árni að það þyrfti ekki að vera. Spurður um hversvegna Bandaríkin vildu ekki hafa Ísland með svaraði Árni með því að hann vildi ekki tjá sig frekar um þetta.
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Fleiri fréttir Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Sjá meira