Deiliskipulag á Pósthúsreit samþykkt í borgarráði 3. júlí 2008 15:26
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag deiliskipulagsbreytingu á skipulagi Kvosarinnar varðandi svokallaðan Pósthússtrætisreit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Þar segir að í kjölfar brunans í miðbænum á síðasta ári hafi verið ráðist í hugmyndaleit fyrir svæðið sem nú hafi verið færð í deiliskipulagstillögu. Pósthússtrætisreiturinn, sem er einn elsti hluti Kvosarinnar, afmarkast af Pósthússtræti, Skólabrú, Lækjargötu og Austurstræti. „Mesta breytingin verður í bakgörðum húsanna á reitnum, en þeir eru skipulagðir sem ein heild með gönguleið í gegnum miðjan reitinn frá Austurstræti til Skólabrúar og tengingum út í Lækjargötu og Pósthússtræti. Skjólgóð almenningsrými verða til með torgi á bak við Jómfrúna auk þess sem einn elsti garður landsins, Landfógetagarðurinn, verður endurvakinn og gerður aðgengilegur fyrir almenning," segir í tilkynningu borgarinnar. Þar er einnig bent á að mörg húsanna á þessum reit hafi mikið menningar- og byggingarsögulegt gildi. Hér er átt við hús eins og Apótekið og Hótel Borg, sem teiknuð eru af Guðjóni Samúelssyni, auk þess sem reiturinn hafði að geyma eina elstu götumynd borgarinnar; Austurstræti 20-22 og Lækjargötu 2, en tvö síðarnefndu húsin brunnu síðasta vetrardag, 18. apríl 2007. „Markmið deiliskipulagsins er að sýna byggingararfinum þann sóma sem honum ber en aðlaga húsin jafnframt að nútímaþörfum eins og hægt er. Miðað er við að gömlu húsin verði færð til eldra horfs eða lagfærð. Miklar kröfur eru gerðar til hönnunar og um frágang. Einnig er gert ráð fyrir því að Nýja Bíó verði endurreist á svipuðum stað og það áður stóð," segir enn fremur í tilkynningu borgarinnar.
Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Myndband sýnir ferðamenn hætt komna í miklum öldugangi við Reynisfjöru Innlent Kalt veður skilaði metári í vatnsnotkun Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Myndskeið frá Jökulsárlóni: „Tifandi tímasprengja“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira