Erlent

Einn látinn og annars saknað eftir óveður í Bretlandi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/Solarnavigator.net

Einn maður lést og eins er saknað eftir að óveður gekk yfir suður- og vesturhluta Bretlands í gærkvöldi og nótt.

Sá sem lést lenti í árekstri á vélhjóli eftir að hafa blindast algjörlega í ausandi rigningu og stormi en maðurinn sem leitað er að fór út á báti og var við fiskveiðar undan Leigh-on-Essex. Sá tilkynnti um fjarskipti að hann hygðist snúa til lands þegar syrta tók í álinn en síðan hefur ekkert til hans spurst.

Í bænum Trebanos gerði slíkt flóð að bjarga þurfti sjö manna fjölskyldu út um þakglugga á heimili þeirra þar sem ekki var hægt að opna dyr vegna vatnselgsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×