Innlent

,,Krónan er í raun veru ónýtur pappír"

Ekkert lát virðist vera á falli krónunnar sem veiktist um 2,8 prósent í dag. Sérfræðingar segja að lítið geti komið í veg fyrir áframhaldandi fall. Krónan er ónýtur pappír segir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.

Staða krónunnar hefur aldrei verið jafn slæm. Frá því á mánudaginn hefur krónan fallið um 14 prósent.

Dollarinn kostar nú tæpar 114 krónur, pundið 200 krónur, evran 157 og danska krónan tuttugu og eina.

Sérfræðingar - sem fréttastofa talaði við í dag - segja krónuna vera í stjórnlausu falli og að fátt geti komið í veg fyrir að hún veikist meira á næstu dögum og vikum.

Í dag gengu sögur um gjaldeyrishömlur og lánveitingar frá Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum til að bjarga stöður krónunar. Þær fengust hins vegar ekki staðfestar.

Mikill þrýstingur hefur myndast á verðhækkanir og ljóst að áhrifanna að gengislækkuninni á eftir að gæta víða.

,,Það sem er að gerast þessa daga núna er það að það er verið að loka á viðskipti með krónu úti í heimi. Krónan er í raun veru ónýtur pappír í dag og það gengur ekki að búa við slíkan gjaldeyri. það verður eitthvað að gerast," segir Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.

Undir þetta tekur Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. ,,Þetta er grafalvarlegt ástand og ef ekkert verður gert til þess að koma heimilunum til bjargar þá verður einfaldlega fjöldagjaldþrot hjá heimilum og ekki síst ungu fólki," segir Jóhannes.

,,Menn notfæra sér þessa stöðu. Stóru vogunarsjóðir þeir eru senn búnir að taka afstöðu gegn okkur og við verðum að verjast því og það getum við ekki gert nema í gegnum myntbandalag Evrópu," Guðmundur Guðmundsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×