Innlent

Aðalhagfræðingur IMF vonar að Ísland þiggi aðstoð

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Gylfi Zoega prófessor í þjóðhagfræði sagði í fréttum Sjónvarpsins nú í kvöld að aðalhagfræðingur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins væri boðinn og búinn að veita íslendingum hjálp á þessum erfiðu tímum. Hann sagði aðalhagfræðingin einnig vona að íslendingar þegðu hjálp sjóðsins.

Gylfi sagðist hafa rætt við aðalhagfræðing sjóðsins og hefði mátt hafa fyrrgreind atriði eftir honum. Hann lagði áherslu á að þetta væri ekki yfirlýsing frá sjóðnum heldur persónulegt samtal þeirra tveggja.

Jónas Haralz hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri sagði einnig í fréttinni að eina leið okkar nú væri að þiggja aðstoð sjóðsins.

Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson sögðu hinsvegar báðir á blaðamannafundi í dag að þeir vildu fyrst kanna hver skilyrði sjóðsins væru, áður en beðið yrði um aðstoð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×