Fletcher: Íslenska liðið hreif mig Elvar Geir Magnússon skrifar 10. september 2008 21:22 Fletcher og George Burley.
Darren Fletcher, miðjumaður Skotlands og Manchester United, var virkilega ánægður með stigin þrjú í kvöld. „Það mikilvægasta er að við náðum sigri í kvöld. Baráttan var til staðar þó við héldum boltanum ekki vel," sagði Fletcher við Vísi eftir leik. „Það er sama hverjir mótherjarnir eru, það er alltaf erfitt að spila á útivelli í svona keppni. Þetta var erfiður leikur og íslenska liðið hreif mig. Þeir léku vel sín á milli og það kom mér mjög á óvart. Þeir geta gert góða hluti í riðlinum. Þetta var skemmtilegur leikur áhorfs og við þurftum að hafa mikið fyrir þessu," sagði Fletcher. „Það eru nokkrir mjög góðir leikmenn í íslenska liðinu. Ég lék gegn Hermanni Hreiðarssyni í fyrstu leikjunum í Englandi og hann er mjög erfiður viðureignar og sterkur atvinnumaður. Svo skapaði Eiður Smári Guðjohnsen usla hjá okkur en annars náðum við að höndla hann vel og vörnin hjá okkur náði sér vel á strik. Það er skammt stórra högga á milli hjá Fletcher. Í kvöld lék hann á Laugardalsvellinum en á laugardaginn heldur hann með félögum sínum í Manchester United á Anfield og leikur gegn Liverpool. Fletcher er markahæsti leikmaður United á tímabilinu. „Það er gríðarlega mikilvægur leikur og við verðum að sækja þrjú stig í honum. Leikirnir gerast ekki stærri en þegar við mætum á Anfield og ég hlakka mikið til leiksins," sagði Fletcher.
Fótbolti Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Sjá meira