Hefur borðað 23 þúsund Big Mac borgara 10. september 2008 16:00
Bandaríkjamaðurinn Dan Gorske náði merkum áfanga í síðasta mánuði en hann hefur hesthúsað 23 þúsund Big Mac hamborgara á lífsleiðinni. Það var þann 17. maí árið 1972 sem Dan, sem er 54 ára gamall, tók þá ákvörðun að borða að minnsta kosti tvo Big Mac á dag og hann hefur að mestu staðið við það allan þann tíma. Þeir sem ekki leggja trúnað á þetta geta snúið sér til Dans því hann hefur samviskusamlega geymt hverja einustu kvittun fyrir borgurunum. Þetta óvenjulega mataræði virðist þó ekki hafa farið illa með Dan, sem er 188 sentimetrar á hæð og um 88 kíló. Hann tekur þó fram að hann stundi líkamsrækt og gengur um 15 kílómetra á hverjum degi. Á níunda áratugnum fékk hann sér alltaf franskar með borgurunum en hætti því á þeim tíunda. Nú fær hann sér bara franskar til hátíðabrigða, um það bil einu sinni í mánuði. „Stundum er ég kallaður viðrini en það hefur engin áhrif á mig," segir Dan hress í bragði í viðtali við AP fréttastofuna. Átta sinnum hefur hann lent í því að fá engan Big Mac borgara yfir daginn. Einu sinni varð hann við hinstu ósk móður sinnar sem bað hann um að sleppa borgurunum daginn sem hún yrði jörðuð. „Ég lofaði henni því og ég stend alltaf við það sem ég segi. Ég lofaði henni einnig að ég myndi ekki skerða hár mitt og hef ekki gert það í 20 ár." Tvisvar hefur hann misst af borgara vinnu sinnar vegna, en hann starfar í fangelsi í Wyoming. Þá hefur hann lent þrisvar sinnum í því að finna ekki McDonalds stað á ferðalagi auk þess sem hann sleppti Big Mac á þakkargjörðadaginn árið 2000. Árið 1982 kom mikið óveður í veg fyrir að McDonalds staðurinn í bænum hans gæti opnað og upp frá því hefur hann geymt nokkra borgara í frystinum til þess að hann lendi ekki í því aftur.
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Innlent Fleiri fréttir Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Sjá meira