Gengið lék greiðslukortanotendur í útlöndum grátt 14. október 2008 11:23 MYND/Vilhelm
Gengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum sveiflaðist um allt að 50 prósent í síðustu viku, greiðslukortanotendum í útlöndum til mikillar armæðu. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. Þar segir að kortanotendurnir hafi séð á reikngum mun hærri úttektir en þeir gerðu ráð fyrir. Gengið hafi verið óeðlilega lágt 7. og 8. október en þessa daga fór dollarinn upp í allt að 166 krónur, pundið í nærri 300 krónur og danska krónan í 30 krónur samkvæmt gengisskráningu kortafyrirtækjanna. Neytendasamtökin segjast hafa sent fyrirspurn til stjórnenda kreditkortafyrirtækja um það hvort þeir ætli að koma eitthvað til móts við þá viðskiptavini sem notuðu kortin dagana 7.-8. október hjá Visa og 7. október hjá Mastercard. Því miður hafi þeir ekki séð sér fært að breyta eða lækka þessar úttektir til samræmis við dagana á undan og eftir. „Neytendasamtökin hvetja þó enn og aftur kortafyrirtækin og viðskiptabanka til að endurskoða þessa afstöðu. Kortanotendur voru í þeirri stöðu að þeir höfðu ekki upplýsingar um að gengið þessa daga myndi hækka úttektir þeirra um allt að helming. Þetta óeðlilega ástand bitnar á litlum hóp viðskiptavina og því treysta Neytendasamtökin því að bankar og kortafyrirtæki sjái sér hag í umreikna þessar úttektir í samræmi við gengið dagana fyrir og eftir," segir á vef Neytendasamtakanna.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira