Útsvarstekjur borgarinnar 2,5 milljörðum minni en búist var við 9. október 2008 15:03
Útsvarstekjur borgarinnar verða um 2,5 milljörðum króna minni í ár en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í bréfi borgarhagfræðings um forsendur fjárhagsáætlunar næsta árs sem lagt var fram á fundi borgarráðs í dag. Þar segir að samkvæmt upphaflegum áætlunum hafi verið gert ráð fyrir um 39,6 milljörðum króna í útsvarstekjur en þær verði í staðinn 37,1 milljarður. Þá er gert ráð fyrir að útsvarstekjurnar minnki enn frekar á næsta ári og verði 36,7 milljarðar og minnki þannig um eitt prósent. Enn fremur er gert ráð fyrir að fasteignaskattar dragist saman um 150 milljónir á milli ára og verði 13,5 milljarðar. Enn fremur kemur fram í bréfinu að tekjur af sölu byggingarréttar verði aðeins sjö prósent af því sem gert var ráð fyrir á þessu ári og sama sé að segja af gatnagerðargjöldum. Þá séu engin teikn um viðsnúning á fasteignamarkaði og reiknað með að tekjur af sölu byggingaréttar verði um 500 milljónir á næsta ári. Þá gerir borgarhagfræðingur ráð fyrir að verða á íbúðarhúsnæðoi minnki um 5-10 prósent á næsta ári. Gangi það eftir sé útlit fyrir fjórðungsraunlækkun húsnæðisverðs á tveimur árum. Útlitið sé enn dekkra varðandi atvinnuhúsnæði en á þeim markaði sé margfalt framboð á við eftirspurn. Um atvinnuhorfur segir borgarhagfræðingur að búast megi við því að atvinnuleysi verði 1,5 prósent á þessu ári en fjögur prósent á því næsta. Hins vegar er reiknað með að margir fari í nám og að launþegar sem missi atvinnu færi sig í önnur og verr borguð störf fremur en að verða atvinnulausir. Í þessu felist að starfandi fólki muni fækka til muna, eða um 3,5 prósent. Þá segir borgarhagfræðingur að mikiæ óvissa sé um þróun gengis krónunnar. Gengisþróunin það sem af er mánuði hafi verið með miklum ólíkindum og miðað við stöðuna þegar vika var liðin af mánuðinum hafi gengisvísitalan hækkað um 75 prósent frá upphafi fyrsta árs. „Þessi þróun er út úr öllu korti og gengislækkunin langt umfram það sem samrýmist langtíma jafnvægi í hagkerfinu," segir í bréfinu. Bent er á að alþjóðafjármálakerfið standi á brauðfótum og útlitið sé dökkt og ringulreið ríkjandi. Íslenskt bankakerfi og fjármálamarkaður séu við þrot og erfitt að ráða í þróun á næstunni. Við þessi skilyrði reynist afar erfitt að setja fram haldgóða spá um gengisþróun en þó sé gert ráð fyrir að gengisvísitala krónunnar verið 160 stig á næsta ári.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira