Zimsen-húsið á sinn stað í Kvosinni 30. september 2008 12:45
Um hundrað og tuttugu ára gamalt hús var í gær flutt á sinn framtíðarstað í hjarta Kvosarinnar. Ferðalag Zimsen hússins frá Grandagarði að Grófartorgi tók hálfa aðra klukkustund og gekk ljómandi vel, segir framkvæmdastjóri Minjaverndar. Húsið var flutt í gærkvöldi og er nú komið heilu og höldnu á Grófartorgið. Þótt húsið líti vel út að utan á enn eftir að gera það upp að innan. Þó er áætlað að fólk geti eftir átta mánuði farið að panta sér kræsingar á veitingastað sem verður í kjallara hússins en búið er að ganga frá samningi um rekstur hans við Guðmund Hansson veitingamann sem rekið hefur Lækjarbrekku í sextán ár. Húsið er kjallari og tvær hæðir, samtals um 680 fermetrar. Á fyrstu hæð verður verslun og þjónusta og á efri hæð skrifstofur. Að sögn Þorsteins Bergssonar, framkvæmdastjóra Minjaverndar, gekk flutningurinn vel og þar sem tíminn á Granda var nýttur til að treysta burðarvirki hússins er stefnt að því að húsið verði fullklárað í maí. Áætlað er að kostnaður við endurgerð og flutning hússins verði um 240 milljónir króna. Minjavernd fjármagnar endurgerðina og á húsið, samkvæmt samningi við Reykjavíkurborg. Til stendur að selja húsið í fyllingu tímans þegar markaðsaðstæður leyfa.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira