Ekki rætt um sameiningu Glitnis og Landsbankans á leynifundi 30. september 2008 18:42
Forsætisráðherra og talsmaður Björgólffsfeðga vísa því á bug að rætt hafi verið um sameiningu Glitnis og Landsbankans á leynifundi í stjórnarráðinu í gær. Formaður Framsóknarflokksins segir sjálfstæðismenn ekki hafa heimild til að ræða framtíð Glitnis í reykfylltum bakherbergjum. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fundaði með Björgólfi Thor Björgólfssyni og bankastjórum Landsbankans í stjórnarráðinu í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðins hafa Landsbankamennn áhuga á að sameinast Glitni. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir að ekki hafi verið rætt um sameiningu bankanna. Í sama streng tók Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, þegar fréttastofa hafði samband í dag. Forsætisráðherra sagðist eingöngu hafa verið að ræða stöðu mála. ,,Það er ekkert sérstakt sem gekk á. Ég tala mikið við þessa menn og við hittumst í gærkvöldi. Ég nota gjarnan tækifærið og spjalla við Björgólf Thor þegar hann er á landinu," sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í dag. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ekki eðilegt að rætt sé um framtíð Glitnis áður en Alþingi tekur afstöðu til málsins.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira