Símarnir rauðglóandi hjá Glitni í morgun 30. september 2008 12:10
Símarnir í þjónustuveri Glitnis hafa verið rauðglóandi í morgun þar sem fólk hefur verið að forvitnast um stöðu bankans eftir tíðindi gærdagins. Þrír af tíu sjóðum Glitnis verða lokaðir fyrir viðskipti í allan dag. Fréttastofa hringdi nú fyrir hádegið í þjónustuver Glitnis þar sem starfsmenn hafa verið önnum kafnir við að svara fyrirspurnum frá viðskiptavinum bankans. Fólk mun vera ótrúlega rólegt yfir tíðindum gærdagsins og ýmsum létt yfir því að bankinn sé kominn í ríkiseigu. Enn er ekki hægt að sýsla með peninga í þremur af tíu sjóðum Glitnis - en sjóðirnir eru sparnaðarleiðir sem bankinn býður viðskiptavinum. Engin leið var að ná sambandi við nokkurn mann hjá Glitni sjóðum, en að sögn upplýsingafulltrúa bankans var ákveðið að hafa áfram lokað fyrir viðskipti í þessum sjóðum vegna þeirrar óvissu sem upp kom í gær. Hann gat ekki skýrt þessa óvissu nánar. Hins vegar verði opnað fyrir viðskipti eins skjótt og kostur er. Hann segir fólk ekki hafa verið að koma í bankann til að taka út sitt sparifé þvert á móti séu viðskiptavinir almennt rólegir yfir aðkomu ríkisins að bankanum. Bankinn sendi frá sér yfirlýsingu nú laust fyrir fréttir þar sem segir að til að vernda hagsmuni eigenda skírteina í sjóðum 9, 1 og myntsjóðs evru og tryggja verðmæti eigna verði þessir sjóðir lokaðir í dag. Sú ákvörðun sé tekin í fullu samráði við Fjármálaeftirlitið. Vonast er til að hægt verði að opna fyrir viðskipti í þeim á morgun.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira