ESB horfir til Íslands í samkeppnismálum 4. júlí 2008 14:04 Neelie Kroes ásamt Björgvin G. Sigurðssyni.
Framkvæmdastjóri samkeppnismála hjá Evrópusambandinu segir ESB horfa til Íslands þegar kemur að samkeppnismálum. Hún segir Ísland hafa margt fram að færa í þessum efnum. Neelie Kroes hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra samkeppnismála hjá Evrópusambandinu síðan 2004, en hún var áður utanríkisráðherra og samgönguráðherra í hollensku ríkisstjórninni. Skipun Kroes vakti nokkrar deilur á sínum tíma því margir vildu meina að hún væri of tengd viðskiptalífinu til að geta sinnt starfinu. En hún hefur látið til sín taka og eitt hennar fyrsta verk var að höfða málsókn gegn tölvurisanum Microsoft fyrir brot á samkeppnislögum. Hefur hún hlotið viðurnefnið ungfrú Microsoft fyrir vikið, en þess má geta að árið 1996 veitti hún Bill Gates, forstjóra Microsoft, heiðursdoktorsnafnbót fyrir hönd Nijenrode háskólans í Hollandi. Og undanfarin tvö ár hefur hún prýtt lista Forbes tímaritsins yfir 100 valdamestu konur heims. Kroes ávarpaði ráðstefnu um bótarétt vegna samkeppnislagabrota sem viðskiptaráðuneytið og Samkeppniseftirlitið stóðu fyrir á Hilton hóteli í morgun. Þar fjallaði hún um drög að nýjum samkeppnislögum sem hafa verið í undirbúningi innan ESB um nokkurt skeið. Hún segir að í þeirri vinnu hafi vinnuhópurinn horft til Íslands sem búi við mjög gagnsætt og skilvirkt samkeppnisumhverfi. Að því leyti geti Íslendingar miðlað miklu til ESB. Kroes tilgreindi sérstaklega mál olíufélaganna sem þykir sérstakt að því leyti að þar hafi einstaklingur tekið sig til og barist fyrir því sem hann taldi sig eiga rétt á.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira