Innlent

Stjórn Félags fréttamanna ósátt við stöðu Ríkisútvarpsins ohf.

Mynd/GVA

Stjórn Félags fréttamanna skorar á menntamálaráðherra, ríkisstjórn Íslands og Alþingi að tryggja Ríkisútvarpinu ohf. þær tekjur sem lofað var þegar Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Félags fréttamanna.

,,Ríkisútvarpið getur ekki sinnt lýðræðis- og menningarlegu hlutverki sínu, né þeirri almannavarnaþjónustu sem því er ætlað nema með auknum tekjum.

Jafnframt undrast stjórn Félags fréttamanna forgangsröðun við niðurskurðinn, sem bitnaði um of á fréttastofum Útvarpsins og Sjónvarpsins. Hlutfallslega koma uppsagnir vegna niðurskurðarins verst niður á fréttastofunum. Það er mat stjórnar félagsins að niðurskurðurinn veiki fréttastofurnar, ekki síst á landsbyggðinni þar sem hlutfallslega mörgum var sagt upp."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×