Iceland = Í djúpum skít 29. desember 2008 06:30 Poul Thomsen og félagar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hafa verið áberandi í fréttum af „Iceland“ á google.com
Orðið „Iceland“ hefur verið áberandi á vefsíðum veraldarvefjarins undanfarna þrjá mánuði eða síðan íslensku bankarnir fóru á annan endann. Freyr Gígja Gunnarsson rannsakaði málið á leitarsíðunni google og komst að því að Ísland hefur náð að troða sér inn í málvitund erlendra blaðamannna. „Kenningar um tilnefningar til Óskarsverðlauna verða yfirleitt jafnfljótt gjaldþrota og íslensku bankarnir.“ Þannig skrifar blaðamaður Reuters-fréttastofunnar um þær tilgátur sem spretta fram þegar nær dregur Óskarsverðlaununum í Bandaríkjunum. Orðið „Iceland“ er því orðið að hálfgerðu hugtaki í hugum erlendra blaðamanna. Skiptir engu um hvað er skrifað, ef einhver er í djúpum skít, á leið í ræsið eða þaðan af verra er hann huggaður með þeim orðum að hann sé ekki í jafn slæmum málum og „Iceland“. Og allir vita hvað það þýðir: Þjóðargjaldþrot. „Iceland“ hefur því náð þeim áfanga að troða sér inn í málvitund erlendra blaðamanna. Tæplega tíu þúsund fréttir voru skrifaðar um „Iceland“ á netinu á undanförnum mánuði ef marka má leitarvélina Google. Flestar fréttirnar fjalla eðlilega um efnahagshrunið og aðstoðina frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Inn á milli má þó rekast á vandræðasögur af Kerry Katona, talskonu frystivörukeðjunnar Iceland, sem er í eigu Íslendinga. Hún mætti nefnilega blindfull í sjónvarpsþátt og vissi hvorki í þennan heim né annan. Hegðunin varð eflaust ekki til að bæta ímynd orðsins „Iceland“ á netinu; ekki eingöngu tengdist það gjaldþroti heldur líka fallinni raunveruleikastjörnu. En það eru þó jákvæðar hliðar á öllu. Erlendir fjölmiðlar eru ákaflega áhugasamir um menningu og sögu þessarar þjóðar sem tókst að setja sig á hausinn með gjálífi og glamúr. Þannig hafa ferðamannavefsíður verið ötular í kynningastarfi sínu og hvetja ferðalanga óspart til að kíkja til Íslands. Athygli vakti þegar Fréttablaðið greindi frá því að nýjasta nýtt væri að láta berja á bragðlaukunum með úldnum hákarli sem hefði fengið stjörnukokkinn Gordon Ramsay til að æla. Fréttavefur Associated Press greindi síðan frá því að vinsælasta jólagjöfin á Íslandi væru notaðir Sound of Music-DVD-diskar og notuð hermannaföt. Í matinn yrði síðan hrossakjöt. Viðskiptavefurinn business24-7.com sem hefur aðsetur í Sádi-Arabíu greindi síðan frá því að Ísland væri ákaflega öflugt í smákökugerð en vinsælast væri þó laufabrauðið. Vefurinn var að taka saman matarhefðir í stórlöndum á borð við Japan, Frakkland og Bandaríkin og ákvað að bæta við Íslandi, eflaust vegna þess að moldríkir olíuarabar hafa áhuga á jólahefðum þessarar gjaldþrota þjóðar í norðri. Gott fyrir Ísland Áhuginn á Íslandi og íslenskri menningu hefur sennilega aldrei verið jafn mikill og erlendir fréttavefir eru uppfullir af fréttum um þessa sérstöku þjóð.
Mest lesið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Útför Megasar Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Fleiri fréttir Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Sjá meira