Andri Snær biður Verzlinga afsökunar - heldur fyrirlestur í sáttarskyni 26. nóvember 2008 10:15 Hafsteinn Gunanr Hauksson forseti nemendafélags Verzlunarskólans.
Rithöfundurinn Andri Snær Magnason hringdi í formann nemendafélags Verzlunarskóla Íslands og baðst afsökunar á ummælum sem hann lét falla í Silfri Egils fyrir skömmu. Þar sagði Andri að núverandi efnahagsþrengingar fælu í sér fall Verzló. Rithöfundurinn mætir á sal skólans í hádeginu og heldur „kreppufyrirlestur". Hafsteinn Gunnar Hauksson forseti nemendafélagsins segir að Andri Snær hafi hringt í sig tveimur klukkustundum eftir að viðtal birtist við sig á Vísi. Í viðtalinu gagnrýndi Hafsteinn Andra og sagði m.a að rithöfundurinn væri vanur að tala kjarkinn í fólk og vera jákvæður. Með umræddum ummælum sínum væri hann hinsvegar að tala ástandið niður þegar hann boðaði fall Verzló. „Hann sagði mér, reyndar líkt og ég hélt allan tímann, að þetta hefði komið öðruvísi út en hann hafi ætlað. Hann bauðst síðan til þess að halda fyrirlestur í sáttarskyni og ég þáði það að sjálfsögðu," segir Hafsteinn en hann bauð Andra að koma og kynna sér skólann í umræddu viðtali. Í viðtali við Egil Helgason sagði Andri Snær að hin svokallaða krúttkynslóð hefði ekki fallið með falli bankanna, heldur fremur Group-kynslóðin. „Þetta er fall SUS, Heimdallar, Verzló og viðskiptaháskólanna. Það er svo stór krítískur massi sem er að hrynja núna," sagði Andri og bætti við að undanfarin ár hefðu heilu kynslóðirnar verið framleiddar og látnar læra það sama og tekið síðan próf. Rithöfundurinn mun mæti í Verzlunarskólann í hádeginu í dag og tala við Verzlinga.
Tengdar fréttir Ósáttur við ummæli Andra Snæs um fall Verzló Hafsteinn Gunnar Hauksson, formaður Nemendafélags Verzló, er ósáttur við ummæli Andra Snæs Magnasonar rithöfundar um að núverandi efnahagsþrengingar feli í sér fall Verzló. 10. nóvember 2008 12:58 Krúttkynslóðin lifir en Groupkynslóðin féll Rithöfundurinn Andri Snær Magnason var gestur í Silfri Egils á Rúv í dag. Þar sagði hann m.a að krúttkynslóðin hefði ekki fallið þar sem hún hefði ekki tekið lánin heldur notað og nýtt gamla hluti. Hann sagði hinsvegar að Groupkynslóðin hefði beðið skipbrot og að á næstu dögum og vikum þyrfu nokkrir að segja af sér, biðjast afsökunar og sýna auðmýkt. Eftir það væri hægt að byrja að byggja upp. 9. nóvember 2008 13:35 Mest lesið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Útför Megasar Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Sjá meira
Ósáttur við ummæli Andra Snæs um fall Verzló Hafsteinn Gunnar Hauksson, formaður Nemendafélags Verzló, er ósáttur við ummæli Andra Snæs Magnasonar rithöfundar um að núverandi efnahagsþrengingar feli í sér fall Verzló. 10. nóvember 2008 12:58
Krúttkynslóðin lifir en Groupkynslóðin féll Rithöfundurinn Andri Snær Magnason var gestur í Silfri Egils á Rúv í dag. Þar sagði hann m.a að krúttkynslóðin hefði ekki fallið þar sem hún hefði ekki tekið lánin heldur notað og nýtt gamla hluti. Hann sagði hinsvegar að Groupkynslóðin hefði beðið skipbrot og að á næstu dögum og vikum þyrfu nokkrir að segja af sér, biðjast afsökunar og sýna auðmýkt. Eftir það væri hægt að byrja að byggja upp. 9. nóvember 2008 13:35