Ísland byrji að undirbúa Evrópusambandsaðild 5. júlí 2008 11:52
Tveir helstu ráðgjafar eldri ríkisstjórna á Íslandi vilja að þegar verði byrjað að undirbúa umsókn um aðild að Evrópusambandinu til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika og leysa vanda íslenskra banka og fjármálastofnana. Einar Benediktsson, einn reyndasti sendiherra þjóðarinnar, og Jónas H. Haralz, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans og efnahagsráðgjafi fjölmargra íslenskra ríkisstjórna, hafa skrifað grein sem birt er í Morgunblaðinu í dag undir titilinum "Öryggi í hnattvæddum heimi." Þar lýsa þeir skoðun sinni að þegar ætti að byrja að undirbúa umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Miklu skipti að tengsl Íslands við umheiminn hvíli á traustri stöðu í alþjóðlegu umhverfi viðskipta- og fjármála, ekki síður en stjórnmála. Það er mat þeirra Einars og Jónasar að eins og saknir standi nú verði slíkt ekki tryggt utan Evrópusambandsins. Með því að hefja undirbúning umsóknar væri gefinn til kynna fullur vilji til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika og þannig greitt fyrir úrlausn þess bráða vanda sem fjármálastofnanir landsins eigi við að etja. Nú sé svo komið að spyrja verði hvort nauðsyn beri til þess vegna öryggis landsins að leita aðildar að myntbandalagi sem geti gefið peningamálum þá festu sem atvinnulífið þurfi á að halda. Í greininni segir að þó slík ákvörðun væri efnahagslegs eðlis væri hún í fullu samræmi og eðlilegu samhengi við ný viðhorf í varnarmálum eftir brottför varnarliðs Bandaríkjamanna. Áhugi Evrópuþjóða á þátttöku í eftirlitsflugi með herþotum við Ísland bendi varla til annars en að umhverfi Íslands tengist varnarhagsmunum þeirra. Því hljóti stefna Evrópusambandsins í öryggis- og varnarmálum að vera áhuga- og hagsmunamál fyrir Ísland.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira