Valllendismóa fórnað fyrir fótboltavöll SB skrifar 3. júlí 2008 14:39 Pálmi Jónasson fréttamaður. Segist engin svör hafa fengið við þessu skipulagsslysi.
Pálmi Jónasson fréttamaður vaknaði í morgun við læti í stærðarinnar jarðýtu sem var að fletja út valllendismóa við svefnherbergisgluggan hans. Hann segir ótrúlegt að ósnortnum valllendismóa sé fórnað fyrir fótboltavöll. „Það var bara jarðýta hérna að fletja út ósnortinn valllendismóa sem hefur verið látinn vera frá ómunatíð. Til þess að búa til fótboltavöll!" segir Pálmi Jónasson fréttamaður sem svo sannarlega vaknaði upp við vondan draum. „Þetta er bara rétt hérna við svefnherbergisgluggan minn. Mér finnst með ólíkindum að svona einstakur valllendismói sé jafnaður við jörðu án nokkurrar kynningar." Pálmi segir að svæðið sé borgarlóð þar sem ægi saman blóðbergi, steinum, hólum, gjótum og fuglalífi. Hann hafi reynt að hringja í skipulagsyfirvöld, embættismenn og borgarfulltrúa í leit að svörum en án árangurs. „Það virðist enginn vita af hverju þetta er gert eða hver getur stöðvað þetta," segir hann. Mikill uppgangur hefur verið í gerð sparkvalla á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið. Pálmi segist ekkert hafa á móti sparkvöllum og eflaust hafi einhver beðið um sparkvöll á þessum stað. „Ef það er málið að meirihlutinn hafi viljað setja þarna sparkvöll þarf maður bara að sætta sig við það. En að það mæti jarðýta klukkan átta að morgni og hefji störf og enginn veit neitt. Það er einstök stjórnsýsla á 21. öldinni."
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira