Innlent

Samningaviðræðum við Heilsuverndarstöðina slitið

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Jórunn Frímannsdóttir er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Jórunn Frímannsdóttir er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

Velferðarráð Reykjavíkur ákvað á fundi sínum fyrr í dag að slíta samningaviðræðum við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Norðlingaholti.

Fyrirhugað var að opna í haust áfangaheimili í Hólavaði í Norðlingaholti á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar. Vísir greindi frá því í júlí að eigandi raðhúsalengjunnar við Hólavað var lýstur gjaldþrota í apríl. Einn kröfuhafa leysti eignir fyrirtækisins til sín.

Stellu Víðisdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, var á fundinum falið að skoða málið frá grunni og ræða á ný við þá fjóra aðila sem sóttust eftir samstarfi og koma með tillögu til velferðarráðs í kjölfar þess.

Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, segir að það sé leitt að samningaviðræðurnar við Heilsuverndarstöðina hafi ekki gengið upp. Miklar væntingar hafi verið bundnar við áfangaheimilið og hugmyndafræði fyrirtækisins.

Jórunn er vongóð um það skynsamleg tillaga komi frá sviðinu um framhaldið. ,,Mikilvægast er að við náum að þjónusta þennan hóp sem þarf nauðsynlega á búsetuúrræði að halda."

SÁÁ og Vinstri grænir gagnrýndu í byrjun sumars ákvörðun velferðarráðs að ganga til samninga við Heilsuverndarstöðina þar sem tilboð SÁÁ var lægra. Við val á samstarfsaðila hafði talsverð áhrif að Heilsuverndarstöðin hafði til taks ,,afar hentugt húsnæði fyrir umrædda starfsemi."

Í júlí afhentu íbúar í Norðlingaholti Ólafi F. Magnússyni, þáverandi borgarstjóra, ríflega 300 undirskriftir íbúa í hverfinu sem andsnúnir eru staðsetningu áfangaheimilisins. Borgaryfirvöld voru gagnrýnd fyrir að hafa ekki kynnt fyrirhugað heimili og starfsemina fyrir sér.

Eftirfarandi tillaga var lögð fyrir velferðarráð í dag:

Í kjölfar yfirlýsingar sem Velferðarsviði Reykjavíkurborgar barst frá Heilsuverndarstöðinni/Alhjúkrun í dag samþykkti velferðarráð samhljóða tillögu meirihluta velferðarráðs þar sem lagt er  til að viðræðum Velferðarsviðs við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun verði hætt. Í yfirlýsingunni kom fram að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun geti ekki staðfest að húsnæðið að Hólavaði 1-11 sé fyrir hendi.

Sviðsstjóra Velferðarsviðs hefur verið falið að skoða málið frá grunni, þ.m.t. að ræða á ný við þá fjóra aðila sem sóttust eftir samstarfi og koma með tillögu til velferðarráðs í kjölfar þess.
















Tengdar fréttir

Þorleifur: Borgarráð var blekkt

Þorleifur Gunnlaugsson segir að borgarráð hafi verið blekkt þegar yfirlýsing frá Heilsuverndarstöðinni og Hag var lögð fyrir ráðið 26. júní síðastliðinn.

Áfangaheimili opnar ekki nema húsnæði verði tryggt

Velferðarsvið Reykjavík hefur ekki lokið við gerð samnings við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Hólavaði í Norðlingaholti þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvort umrætt húsnæði sé til ráðstöfunar þar sem það er nú í eigu þrotabús.

Afhenda borgarstjóra undirskriftalista

Íbúar í Norðlingaholti afhenda Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra undirskriftalista í dag með mótmælum yfir 300 íbúa í nágrenni við fyrirhugað áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í hverfinu í haust.

Enn óvissa með áfangaheimili

Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að beðið sé eftir að málefni fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði skýrist og því sé enn óvissa um hvort og hvenær starfsemi þess hefjist.

Óvissa með húsnæði áfangaheimilis

Eigandi húsnæðis sem Heilsuverndarstöðin ætlar að nýta sem áfangaheimili í raðhúsalengju í Norðlingaholti var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl. Því er enn óvissa um hvort starfsemin hefjist á réttum tíma.

Veðhafi leysir fyrirhugað áfangaheimili til sín

Byr sparisjóður leysir líklega í dag til sín eignir þrotabús Í skilum sem meðal annars á fasteignirnar Hólavað 1 til 11 en Reykjavíkurborg hyggst opna þar áfangaheimili í haust.

Undirskriftasöfnun hafin gegn áfangaheimili

Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust. ,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×