Samningaviðræðum við Heilsuverndarstöðina slitið Magnús Már Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2008 15:55 Jórunn Frímannsdóttir er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Velferðarráð Reykjavíkur ákvað á fundi sínum fyrr í dag að slíta samningaviðræðum við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Norðlingaholti. Fyrirhugað var að opna í haust áfangaheimili í Hólavaði í Norðlingaholti á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar. Vísir greindi frá því í júlí að eigandi raðhúsalengjunnar við Hólavað var lýstur gjaldþrota í apríl. Einn kröfuhafa leysti eignir fyrirtækisins til sín. Stellu Víðisdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, var á fundinum falið að skoða málið frá grunni og ræða á ný við þá fjóra aðila sem sóttust eftir samstarfi og koma með tillögu til velferðarráðs í kjölfar þess. Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, segir að það sé leitt að samningaviðræðurnar við Heilsuverndarstöðina hafi ekki gengið upp. Miklar væntingar hafi verið bundnar við áfangaheimilið og hugmyndafræði fyrirtækisins. Jórunn er vongóð um það skynsamleg tillaga komi frá sviðinu um framhaldið. ,,Mikilvægast er að við náum að þjónusta þennan hóp sem þarf nauðsynlega á búsetuúrræði að halda." SÁÁ og Vinstri grænir gagnrýndu í byrjun sumars ákvörðun velferðarráðs að ganga til samninga við Heilsuverndarstöðina þar sem tilboð SÁÁ var lægra. Við val á samstarfsaðila hafði talsverð áhrif að Heilsuverndarstöðin hafði til taks ,,afar hentugt húsnæði fyrir umrædda starfsemi." Í júlí afhentu íbúar í Norðlingaholti Ólafi F. Magnússyni, þáverandi borgarstjóra, ríflega 300 undirskriftir íbúa í hverfinu sem andsnúnir eru staðsetningu áfangaheimilisins. Borgaryfirvöld voru gagnrýnd fyrir að hafa ekki kynnt fyrirhugað heimili og starfsemina fyrir sér. Eftirfarandi tillaga var lögð fyrir velferðarráð í dag: Í kjölfar yfirlýsingar sem Velferðarsviði Reykjavíkurborgar barst frá Heilsuverndarstöðinni/Alhjúkrun í dag samþykkti velferðarráð samhljóða tillögu meirihluta velferðarráðs þar sem lagt er til að viðræðum Velferðarsviðs við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun verði hætt. Í yfirlýsingunni kom fram að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun geti ekki staðfest að húsnæðið að Hólavaði 1-11 sé fyrir hendi. Sviðsstjóra Velferðarsviðs hefur verið falið að skoða málið frá grunni, þ.m.t. að ræða á ný við þá fjóra aðila sem sóttust eftir samstarfi og koma með tillögu til velferðarráðs í kjölfar þess.
Tengdar fréttir Þorleifur: Borgarráð var blekkt Þorleifur Gunnlaugsson segir að borgarráð hafi verið blekkt þegar yfirlýsing frá Heilsuverndarstöðinni og Hag var lögð fyrir ráðið 26. júní síðastliðinn. 7. júlí 2008 13:19 Áfangaheimili opnar ekki nema húsnæði verði tryggt Velferðarsvið Reykjavík hefur ekki lokið við gerð samnings við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Hólavaði í Norðlingaholti þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvort umrætt húsnæði sé til ráðstöfunar þar sem það er nú í eigu þrotabús. 9. júlí 2008 15:59 Afhenda borgarstjóra undirskriftalista Íbúar í Norðlingaholti afhenda Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra undirskriftalista í dag með mótmælum yfir 300 íbúa í nágrenni við fyrirhugað áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í hverfinu í haust. 9. júlí 2008 09:45 Enn óvissa með áfangaheimili Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að beðið sé eftir að málefni fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði skýrist og því sé enn óvissa um hvort og hvenær starfsemi þess hefjist. 21. júlí 2008 14:07 Óvissa með húsnæði áfangaheimilis Eigandi húsnæðis sem Heilsuverndarstöðin ætlar að nýta sem áfangaheimili í raðhúsalengju í Norðlingaholti var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl. Því er enn óvissa um hvort starfsemin hefjist á réttum tíma. 7. júlí 2008 12:16 Veðhafi leysir fyrirhugað áfangaheimili til sín Byr sparisjóður leysir líklega í dag til sín eignir þrotabús Í skilum sem meðal annars á fasteignirnar Hólavað 1 til 11 en Reykjavíkurborg hyggst opna þar áfangaheimili í haust. 10. júlí 2008 10:00 Undirskriftasöfnun hafin gegn áfangaheimili Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust. ,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir. 4. júlí 2008 16:53 Vilja að viðræðum við Heilsuverndarstöðina verði slitið Vinstri grænir vilja að samningaviðræðum velferðarráðs Reykjavíkur við Heilsuverndarstöðina um rekstur fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði verði slitið. 7. ágúst 2008 14:30 Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira
Þorleifur: Borgarráð var blekkt Þorleifur Gunnlaugsson segir að borgarráð hafi verið blekkt þegar yfirlýsing frá Heilsuverndarstöðinni og Hag var lögð fyrir ráðið 26. júní síðastliðinn. 7. júlí 2008 13:19
Áfangaheimili opnar ekki nema húsnæði verði tryggt Velferðarsvið Reykjavík hefur ekki lokið við gerð samnings við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Hólavaði í Norðlingaholti þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvort umrætt húsnæði sé til ráðstöfunar þar sem það er nú í eigu þrotabús. 9. júlí 2008 15:59
Afhenda borgarstjóra undirskriftalista Íbúar í Norðlingaholti afhenda Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra undirskriftalista í dag með mótmælum yfir 300 íbúa í nágrenni við fyrirhugað áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í hverfinu í haust. 9. júlí 2008 09:45
Enn óvissa með áfangaheimili Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að beðið sé eftir að málefni fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði skýrist og því sé enn óvissa um hvort og hvenær starfsemi þess hefjist. 21. júlí 2008 14:07
Óvissa með húsnæði áfangaheimilis Eigandi húsnæðis sem Heilsuverndarstöðin ætlar að nýta sem áfangaheimili í raðhúsalengju í Norðlingaholti var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl. Því er enn óvissa um hvort starfsemin hefjist á réttum tíma. 7. júlí 2008 12:16
Veðhafi leysir fyrirhugað áfangaheimili til sín Byr sparisjóður leysir líklega í dag til sín eignir þrotabús Í skilum sem meðal annars á fasteignirnar Hólavað 1 til 11 en Reykjavíkurborg hyggst opna þar áfangaheimili í haust. 10. júlí 2008 10:00
Undirskriftasöfnun hafin gegn áfangaheimili Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust. ,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir. 4. júlí 2008 16:53
Vilja að viðræðum við Heilsuverndarstöðina verði slitið Vinstri grænir vilja að samningaviðræðum velferðarráðs Reykjavíkur við Heilsuverndarstöðina um rekstur fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði verði slitið. 7. ágúst 2008 14:30