Innlent

Meismaður hafði slasað tvo fyrir handtöku

Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum telur lögreglumenn ekki hafa beitt of miklu harðræði þegar maður var handtekinn fyrir utan félagsheimilið á Patreksfirði eftir sjómannadagsball þar í bæ í síðustu viku. Hann segir að það hefði verið ábyrgðarhluti að láta manninn ganga lausan þar sem hann hefði verið búinn að slasa tvo menn.

Myndband af handtöku mannsins hefur verið sett inn á myndavefinn YouTube. Þar sést hvar lögreglumaður beitir varnarúða eða meis gegn manninum eftir að hann neitar að verða við fyrirmælum um að leggjast í jörðina. Í kjölfar þess að hann fær úðann í augun ræðst hann á lögreglumanninn sem sprautaði og kýlir í andlit og fellir í jörðina. Árásarmaðurinn er svo yfirbugaður.

Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, segist hafa skoðað myndbandið, rætt við lögreglumennina og farið yfir skýrslu um atvikið. „Ég dreg þá ályktun út frá forleiknum að maðurinn margskirrist við að hlýða fyrirmælum lögreglu. Hann var búinn að ráðast á tvo menn að ósekju og stjórnandi á vettvangi tekur þá ákvörðun að handtaka manninn. Hann er ekki að fara heim í friði," segi Önundur og segir lögreglumenn hafa reynt að komast hjá því að meiða manninn. „Það hefði verið ábyrgðarhluti að ganga burt frá manninum eftir þessar árásir," segir hann enn fremur.

Fórnarlömb mannsins sem handtekinn var hafa þegar lagt fram kæru á hendur honum að sögn Önundar. Hann segir vitni segja að hinn handtekni hafi steinrotað annað fórnarlamba sinna og skallað hitt í andlitið.

Þessu til viðbótar á hann að líkindum yfi höfði sér ákæru fyrir brot gegn valdstjórninni vegna árásar á lögregluþjóninn með úðann. Aðspurður segir Önundur að töluvert hafi séð á lögregluþjóninum, hann hafi bólgnað á nefi og víðar í andliti.

Myndband af atvikinu má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×