Innlent

,,Við hugsum málið ekki nægjanlega pólitískt"

Guðmundur Þóroddsson
Guðmundur Þóroddsson
Guðmundur Þóroddsson fyrrum forstjóri Orkuveitunnar og REI segir embættismenn eins og sjálfan sig ekki hafa hugsað REI-málið ,,nægjanlega pólitískt." Þetta kom fram í Hádegisviðtalinu á Stöð 2. Guðmundur segir embættismenn ekki hafa farið fram úr sér í málinu og að ákvörðunin um stofnun Reykjavik Energy Invest hafi verið tekin á vettvangi stjórnmálanna. Hann velti því jafnframt upp hvort að Haukur Leósson þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar hafi hugsanlega ekki skynjað ,,hina pólitísku hættu" í málinu. Haukur hafi ekki verið kjörinn fulltrúi en engu að síður verið trúnaðarmaður Sjálfstæðisflokksins og sem slíkur verið skipaður í stjórn OR.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×