Fréttablaðið og Pósthúsið sameinað Árvakri 10. október 2008 09:04 MYND/Teitur
Árvakur hf. og 365 hf. hafa undirritað samning um að sameina Fréttablaðið og Pósthúsið Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Þannig greiðir Árvakur fyrir útgáfu nýs hlutafjár og yfirtöku skulda og kemur 365 inn í hlutahafahóp Árvakurs eftir því sem segir í tilkynningu. „Þessi samningur er gerður í ljósi erfiðleika í blaðaútgáfu vegna harkalegs samdráttar á auglýsingamarkaði og mikilla hækkana á pappírsverði," segir í tilkynningunni. Með þessu náist fram hagræðing á dagblaðamarkaði. Enn fremur kemur fram að útgáfa 24 stunda verði sameinuð Morgunblaðinu í dag Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs, segir að á sama tíma og fyrirtækin fari þessa leið til að hagræða í rekstri leggi þau mikla áherslu á að tryggja áfram ritstjórnarlegt sjálfstæði miðlanna. „Þegar við sameinum 24 stundir Morgunblaðsrekstrinum stóreflum við Morgunblaðið með nýrri, kraftmeiri og ferskari helgarútgáfu blaðsins, sem verður kynnt um aðra helgi," segir Einar. Haft er eftir Ara Edwald, forstjóra 365, í tilkynningunniað ekki verði breytingar á starfsemi Fréttablaðsins vegna kaupanna. „Hins vegar erum við auðvitað alltaf að leita leiða til hagræðingar í rekstrinum og því verður haldið áfram." Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafunda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þar voru fyrirætlanir um kaupin kynntar fyrir nokkru og á næstu dögum verða einstakir þættir málsins skýrðir nánar. Hluthafar Árvakurs fyrir kaupin voru félög í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Valtýr ehf., Lyfjablóm ehf. og Garðar Gíslason ehf. Við kaupin kemur 365 hf. inn í hluthafahópinn og verður 36,5 prósenta hluthafi í Árvakri. Þór Sigfússon er áfram stjórnarformaður Árvakurs og Einar Sigurðsson forstjóri félagsins. Félagið hefur sett sér markmið um að breikka eigendahópinn þegar aðstæður á markaði gefa tilefni til.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Sjá meira