Sálfræðiráðgjöf vegna kreppunnar veitt í Heilsuverndarstöðinni 10. október 2008 11:45 MYND/E.Ól
Geðsvið Landspítalns mun í dag klukkan eitt opna sálfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga sem glíma við mikinn kvíða, depurð, sektarkennd eða önnur álagseinkenni vegna þróunar fjármála á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu spítalans að sálfræðiráðgjöfin verði í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Til að byrja með munu tveir sálfræðingar sinna þjónustunni en einnig verður eitt stöðugildi fyrir aðstoðarmann sem mun sjá um að svara fyrirspurnum frá almenningi, bóka viðtöl og halda utan um verkefni sem lúta að ráðgjöfinni. Sími ráðgjafarinnar verður 458 9999. Ráðgjöfin verður opin á virkum dögum frá kl. 9 til 16. „Vikulegir samráðsfundir verða haldnir með sviðsstjórum geðsviðs, forstöðusálfræðingi og yfirlækni og deildarstjóra bráða- og ferliþjónustu á geðsviði auk þess sem samráð verður haft við heilsugæsluna, Landlæknisembættið og ráðuneyti heilbrigðismála og félagsmála eftir þörfum," segir í tilkynningunni. „Um er að ræða bráðaviðtal þar sem geðheilsa einstaklings verður metin og farið yfir bjargráð og streituvarnir. Í framhaldi af þessu viðtali koma eftirfarandi úrræði m.a. til greina: -Sé um alvarlegt svefnleysi, mikinn kvíða eða þunglyndi að ræða þar sem talin er þörf á viðtölum lækna og/eða lyfjagjöf verður vísað á heilsugæsluna sem mun reyna að sinna slíkum einstaklingum eins fljótt og aðstæður leyfa. Einnig koma til greina tilvísanir til fagfólks á stofu eftir efnum og aðstæðum einstaklinga. - Ef viðkomandi er metinn í sjálfsvígshættu eða í alvarlegri geðlægð verður honum vísað til meðferðar á bráðamóttöku geðsviðs. Sálfræðingur sem sér um matið hringir þá í vakthafandi lækni í bráðamóttöku og boðar komu viðkomandi sem fær eins fljótt og auðið er viðeigandi móttökur og meðferð. -Ef þörf er á, mun verða boðið upp á fyrirlestra þar sem rætt verður um viðbrögð vegna álags, kvíða, depurðar og svefnerfiðleika."
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira