Tryggt verði að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki 10. október 2008 15:52 Kristján L. Möller og Halldór Halldórsson.
Samgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa sent frá sér yfirlýsingu um að tryggja verði að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki þrátt fyrir tekjusamdrátt og kostnaðarhækkanir. Í yfirlýsingunni segir meðal annars að Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hafi verið sveitarfélögunum traustur bakhjarl um árabil og ástæða sé til að kanna möguleika á að styrkja hann í þágu sveitarfélaga. Samgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga styðja framkomna áætlun lánasjóðsins um lánsfjáröflun fyrir sveitarfélögin og hvetja Seðlabanka Íslands og lífeyrissjóði landsmanna til að koma að því af fullum þunga. Þá segir í yfirlýsingunni að Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðuneyti sveitarstjórnarmála muni beita sér fyrir auknu og nánara samráði ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál og framkvæmd opinberrar þjónustu. Yfirlýsingin er svohljóðandi: YFIRLÝSING samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um aukið samstarf vegna stöðu efnahagsmála Í þeim efnahagsþrengingum sem landsmenn standa nú frammi fyrir er brýnt að ríki og sveitarfélög standi þétt saman. Tryggja verður að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki, þrátt fyrir tekjusamdrátt og kostnaðarhækkanir. Sveitarfélögin gegna afar mikilvægu hlutverki í velferðarþjónustunni á sviði fræðslu- og félagsþjónustu sem á tímum sem þessum er nauðsynlegt að njóti forgangs. Nú ríður á að innan sveitarstjórna ríki einhugur og samheldni. Styrkur sveitarfélaga til að takast á við þann efnahagsvanda sem nú er við að glíma er mismikill. Hvatt er til þess að sveitarfélög endurskoði fjárhagsáætlanir sínar og geri aðgerðaáætlanir þar sem forgangsröðun verkefna miði að því að treysta stoðir grunnþjónustunnar. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur verið sveitarfélögunum traustur bakhjarl um langt árabil og hefur mikilvægi hans fyrir sveitarfélögin aldrei verið meira en nú. Ástæða er til þess að kanna möguleika á frekari styrkingu hans í þágu sveitarfélaga. Samgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga styðja framkomna áætlun lánasjóðsins um lánsfjáröflun fyrir sveitarfélögin og hvetja Seðlabanka Íslands og lífeyrissjóði landsmanna til að koma að því máli af fullum þunga. Þannig má tryggja að þau sveitarfélög sem á þurfa að halda geti lokið umsömdum framkvæmdum, endurskipulagt fjárhag sinn og styrkt lausafjárstöðuna. Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðuneyti sveitarstjórnarmála munu beita sér fyrir auknu og nánara samráði ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál og framkvæmd opinberrar þjónustu. Í því skyni munu ráðherra sveitarstjórnarmála og forysta sambandsins eiga tíða samráðsfundi og auka gagnkvæmt upplýsingaflæði um fjármál ríkis og sveitarfélaga. Meginmarkmið aðila er að vinna sameiginlega að því treysta velferð landsmanna til framtíðar. Reykjavík 10. október 2008
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira