Innlent

Íbúi á Skagaströnd vann 45 milljónir í Happdrætti Háskólans

Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd

Einstaklingur á Skagaströnd fékk þau gleðilegu tíðindi í kvöld að hann hefði unnið 45 milljónir í aðalútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands. Hæsti vinningur hjá Happdrætti Háskólans er 5 milljónir á einfaldan miða, en þar sem hinn heppni hafði keypt fimmfaldan miða auk fjögurra einfaldra á sama númer varð heildarvinningsfjárhæðin 45 milljónir.

Nokkuð er um liðið síðan svo stór vinningur kom í hlut eins vinningshafa, en í sumar unnu þó tveir miðaeigendur 25 milljónir annars vegar og 30 milljónir hins vegar.

Heildarfjöldi vinningshafa að þessu sinni voru um þrjú þúsund og óskar starfsfólk Happdrættis Háskóla Íslands þeim öllum innilega til hamingju.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HHÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×