Ægilegt að hugsa til barna sem eiga bágt 27. júní 2008 15:30 Björg Pálsdóttir. „
Foreldrar mínir og amma og afi styrktu börn á Filippseyjum þegar ég var yngri og við fengum alltaf myndir og fréttir af þeim sem var mjög indælt," segir Björg Pálsdóttir sem á tvö aukabörn eins og hún kallar þau úti í heimi þegar Vísir hefur samband vegna Stóru Gospelhátíðarinnar sem stendur yfir til 29. júní. „Við tókum svo að okkur annað barn, stúlku í Úganda, fyrir einu ári, Anek. Hún er algjör dúlla." „Ég sá um að skrifa til þeirra allra þar sem mamma og amma eru ekki sleipar í að skrifa ensku svo ég myndaði nokkur tengsl við þau. Svo þegar ég kynntist manninum mínum árið 2000 þá átti hann eina dóttur í Indlandi, Veru, og við höfum styrkt hana allar götur síðan. Hún er að verða að ungri konu þessa dagana, afskaplega myndarleg með svart sítt hár og gengur vel í skólanum," segir Björg. „Mér finnst alveg nauðsynlegt að styðja við börn úti í heimi í þeirri von að maður hjálpi þeim til bjartari framtíðar. Það er ægilegt að vita til allra þeirra barna sem ekki eiga góða að eða eiga mjög takmarkaða möguleika á menntun og mér finnst það liggur við skylda mín að taka þátt í svona starfi." Vera er að verða að ungri konu þessa dagana, afskaplega myndarleg með svart sítt hár og gengur vel í skólanum, segir Björg. „Ég á nóg að bíta og brenna fyrir mig og mína og sé sannarlega ekki eftir þeim peningum sem fara í þetta starf. Að minni bestu vitund eru ABC stöðug og áreiðanleg samtök og vinna sitt starf af hugsjón og dugnaði. Ég tel mig eiginlega bara lánsama að geta rétt hjálparhönd og myndi vilja að allir sem ég þekki taki að sér að vera styrktarforeldrar fyrir börn í gegnum ABC Barnahjálp eða sambærileg samtök." Á Víðistaðatúni verða haldnir tónleikar öll kvöld í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðar og ABC Barnahjálpar sem heldur upp á 20 ára afmælið að sama skapi. Hér má sjá dagskrá ABC um helgina.
Mest lesið Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Lífið Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Gagnrýni Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Lífið Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Lífið Felix kveður Eurovision með tárum Lífið Quarashi aftur á svið Lífið Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Lífið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Lífið Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlist Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Lífið Fleiri fréttir „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Íslenskir áhrifavaldar fögnuðu sumrinu að sænskum sið „Það má ekki gleyma því af hverju við vorum að þessu“ Allt frá húðflúri yfir í dót úr skúrnum hans Steinda Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Sjá meira