Erlent

Sjö tonn af kókaíni í hálfkafbáti

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hálfkafbáturinn, eða „self-propelled semi-submersible" eins og hann heitir á frummálinu.
Hálfkafbáturinn, eða „self-propelled semi-submersible" eins og hann heitir á frummálinu. MYND/US Coast Guard

Sjö tonn af kókaíni með ætlað götuverðmæti sem svarar um 765 milljónum króna voru gerð upptæk af bandarísku strandgæslunni um helgina í því sem einn þátttakendanna kallaði „hættulegustu aðgerðina á ferli mínum". Fjórir menn voru handteknir við sama tækifæri um borð í ríkisfangslausu skipi um 500 kílómetra vestur af Guatemala.

Skipið er af gerðinni „self-propelled semi-submersible" sem mætti ef til vill þýða sem sjálfknúinn hálfkafbát. Þetta er farartæki sem marar í hálfu kafi við siglingu og er að mestu undir yfirborði sjávar en getur þó ekki farið algjörlega í kaf. Fyrir vikið er það torséð á radar og því ákjósanlegt fley fyrir starfsemi sem illa þolir dagsljósið.

Reyndu ýmis brögð

Áhöfnin skellti vélunum í bakkgír þegar hún varð þess vör að sveit strandgæslunnar var komin um borð í skipið. Með því var ætlunin að fella hópinn í sjóinn. Þetta tókst þó ekki svo næst reyndu fjórmenningarnir að sökkva skipinu með því að opna botnlokur og fylla það af sjó. Strandgæslusveitinni tókst þó að brjóta sér leið inn í skipið og stöðva þessa framkvæmd.

Skipið reyndist búið siglinga- og fjarskiptatækjum af fullkomnustu gerð og getur ferðast mjög langar vegalengdir áningarlaust að sögn strandgæslunnar sem hefur þungar áhyggjur af aukinni notkun slíkra hálfkafbáta við smyglstarfsemi. Þetta útspil segir strandgæslan vera svar við þeirri tækni hennar að gera út þyrlur með skyttum sem skjóti á vélar hefðbundinna hraðbáta. Vélar hálfkafbátsins eru undir sjávarmáli og því ekki auðkomið á þær skoti. Fley af þessari gerð kostar allt að eina milljón dollara, jafnvirði 90 milljóna króna, og er hægt að taka sundur í mjög smáar einingar og þannig smygla því svo lítið beri á milli landa innan um annan varning.

Síðasta ár var metár í kókaínhaldlagningum hjá bandarísku strandgæslunni sem þá lagði hald á 158 tonn af efninu sem er aukning um tvö prósent frá árinu á undan.

CNN greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×