Lífið

Vakthafandi Læknir býr á Stökustað og stal Ópinu eftir Munch

Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar
„Vakthafandi læknir í góðra vina hópi, líklega staddur á Mont-Ras. Þetta er eina myndin sem vitað er til að hafa náðst af Vakthafandi Lækni," segir á vef Vísindavefsins.
„Vakthafandi læknir í góðra vina hópi, líklega staddur á Mont-Ras. Þetta er eina myndin sem vitað er til að hafa náðst af Vakthafandi Lækni," segir á vef Vísindavefsins.

Vísindavefurinn birtir eftirfarandi fróðleik í dag: „Það sem við teljum okkur vita um Vakthafandi Lækni er að hann á heima á Stökustað sem oft er minnst á í veðurfréttum. Hann æpir stundum, enda fullyrða norskir lögreglumenn að hann hafi stolið Ópinu eftir norska spaugarann Munch, en um hann höfum við fjallað í löngu máli áður á Vísindavefnum."

Svarið er við spurningunni Hver er þessi Vakthafandi Læknir sem alltaf er talað við og vitnað í þegar fjölmiðlamenn segja fréttir af slösuðu eða veiku fólki? Segir jafnframt í svari Vísindavefsins að Vakthafandi læknir drekki eingöngu vígt vatn, éti mörgæsir, söngli Bimbi rimbi rimm bamm þegar hann er ekki á spjalli við fjölmiðlamenn og sé eini maðurinn sem hafi reiknað út hornasummu einhyrnings með eingöngu frumtölum.

Að lokum segir Vísindavefurinn í svari sínu: „Við ráðleggum [sic] öllum þeim sem vilja hitta Vakthafandi Lækni að halda í vestur og komast þannig fyrir austan sól og sunnan mána. Ef menn nenna því ekki þá geta þeir bara reynt að troða sér um tær og setið einhvers staðar annars staðar en á rassinum."

Fyrir neðan er reyndar bent á svarið sé markleysa enda sé það föstudagssvar og „taki einhver þetta svar alvarlega er það alfarið á þeirra ábyrgð."

„Tilgangurinn með föstudagssvörunum er að vera skemmtilegur," útskýrir Jón Gunnar Þorsteinsson, aðstoðarritstjóri Vísindavefsins. Föstudagssvörin hafa tíðkast nánast frá upphafi vefsins og oftast eru þau með spaugilegra móti. Jón Gunnar kannast þó ekki við að þau hafi orðið neinum til trafala enda sé ætíð tekið fram að svörin skuli ekki taka alvarlega.

Svör úr flokknum Föstudagssvör má skoða hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.