Hermenn þjálfaðir með tölvuleikjum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 25. nóvember 2008 07:29 Skjáskot úr Darwars Ambush. MYND/BBN.com
Bandaríkjaher hyggst verja 50 milljónum dollara í framleiðslu tölvuleikja sem ætlað er að þjálfa hermenn. Fáum þykja það merkilegar fréttir nú á dögum að flugmenn æfi sig fyrir ýmsar aðstæður í svokölluðum flughermum sem eru ekkert annað en tölvur sem líkja eftir flugvél. En nú er svo komið að Bandaríkjaher hefur séð möguleikann á bókstaflegum stríðshermi sem er meðal annars tölvuleikurinn Darwars Ambush. Næstu fimm árin hyggst herinn verja 50 milljónum dollara til að þróa þann leik og fleiri en hermenn spila svo leikina eins og hverja aðra drápsleiki og heyja þar marga hildina án þess að hætta lífi sínu og limum. Með þessu læra þeir að um gáttir allar skuli skoðast og skyggnast áður en gangi fram því óvíst er að vita hvar óvinir sitja á fleti fyrir. Þessi heilræði Hávamála eru í fullu gildi og það veit ofurstinn Gary Stephens manna best en hann hefur umsjón með þróun leikjanna. Notandinn fær að reyna fyrirsát, sprengjuárásir á bílalestir og ótrúlegustu raunir án þess að enda í líkkistu. Það er því engin furða að blaðamaður CNET-tæknivefjarins spyrji: Getum við þá ekki bara heyjað styrjaldirnar í tölvuleikjum?
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira