Erlent

Blindir nuddarar hótuðu að stökkva af brú

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Einn hinna blindu lætur sig flakka í Han-fljótið.
Einn hinna blindu lætur sig flakka í Han-fljótið. MYND/AP

Lögregla í Suður-Kóreu handtók í gær 26 blinda nuddara sem hótuðu allir sem einn að stökkva af brúnni yfir Han-fljótið í Seoul, höfuðborg landsins.

Nokkrir nuddaranna stukku reyndar af brúnni til að forðast handtöku en áður höfðu þeir kveikt í bíl. Með tiltækinu mótmæltu nuddararnir þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leyfa sjáandi nuddurum að framkvæma tiltekna tegund af sjúkranuddi sem aðeins blindum hefur leyfst að stunda síðan árið 1963. Segjast blindu nuddararnir ekki sjá glóru í þessari ákvörðun sem muni ræna þá lifibrauðinu. Enginn slasaðist í mótmælunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×