Innlent

Hvetja öll íslensk almannaheillsasamtök til að beita sér í kreppunni

Samtökin almannaheill, sem eru félög og sjálfseignarstofnanir sem vinna að almannaheill á Íslandi, minna á það mikilvæga hlutverk sem sem slík samtök gegna í glímu við erfið áföll sem samfélag okkar verður fyrir.

Í tilkynningu frá samtökunum eru öll íslensk almannaheillasamtök, á hvaða sviði þjóðlífsins sem þau starfa, hvött til að leggja sig fram við að liðsinna fólki sem glímir við vandamál vegna þeirrar fjármálakreppu sem ríður yfir þjóðina. Samtökin hvetja ennfremur alla sem hafa tök á því að bjóða sig fram til sjálfboðaliðastarfa hjá almannaheillasamtökum og stuðla þannig að því að þjóðin komist fyrr út úr þeim hremmingum sem hún hefur orðið fyrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×