Innlent

Stjórn Starfsmannasamtaka RÚV: Uppsagnir sorglegar

MYND/GVA

Stjórn Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins ohf. hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún skorar á menntamálaráðherra, ríkisstjórn og Alþingi Íslands að tryggja Ríkisútvarpinu ohf. þær tekjur sem lofað var þegar rekstrarfyrirkomulaginu var breytt.

,,Þegar Ríkisútvarpið ohf. var stofnað sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra að í sérstökum þjónustusamningi við ráðuneytið yrði tilgreint hið fjölþætta menningarlega, lýðræðislega og samfélagslega hlutverk sem Ríkisútvarpið eigi að hafa sem öflugur fjölmiðill í almannaþágu. Í þjónustusamningi segir að þau markmið sem lögð séu til grundvallar í samningnum byggist á þeirri forsendu að tekjur RÚV lækki ekki á tímabilinu.

Ríkisútvarpið ohf. getur ekki sinnt fjölbreyttu hlutverki sínu nema að tekjur fylgi efnahagsþróun í landinu. Það gera þær ekki í dag.

Starfsmannasamtökin minna jafnframt á að mannauður er ein mikilvægasta auðlind hvers fyrirtækis. Það er sorglegt að núverandi ástand bitni fyrst og fremst á almennum starfsmönnum. Uppsagnir ættu að vera síðasta úrræðið sem stjórnendur grípa til, en ekki sjálfsagður liður í hagræðingu."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×