Segja engan fót fyrir sögusögnum um stjórnarslit 2. júlí 2008 11:24 Allt virðist í lukkunnar velstandi hjá ríkisstjórnarflokkunum ef marka má orð þeirra. MYND/Eyþór
Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna segja stjórnarsamstarfið standa traustum fótum og vísa á bug orðum Roberts Wade, prófessors við London School of Economics, um að orðrómur sé um stjórnarslit hér á landi vegna efnahagsástandsins. Þetta fullyrti Wade í grein á vef breska blaðsins Financial Times í gærkvöld þar sem hann fjallaði um efnahagsástandið á Íslandi. Wade, sem kom nýverið til landsins og hélt fyrirlestur við Háskóla Íslands, fullyrti að Samfylkingin hygðist hugsanlega slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og að blásið yrði til nýrra kosninga. Skoðanakannanir bentu til þess að Sjálfstæðisflokkurinn myndi gjalda dýru verði fyrir efnahagsástandið og að Samfylkingin gæti myndað nýja ríkisstjórn einum af minni flokkunum. Fullkomlega úr lausu lofti gripið „Þetta er fullkomlega úr lausu lofti gripið," segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra um þessar fullyrðingar. Hann segir samstarf ríkisstjórnarflokkanna hafa gengið vel og miklu betur en margir hafi haldið í upphafi. „Auðvitað er ekkert mál að draga fram ágreiningsefni enda um ólíka flokka að ræða en ef menn eru einhvern tíma einbeittir að starfa vel er það einmitt nú þegar ástandið er svona," segir Björgvin og vísar til efnahagsþrenginganna. „Við vissum að það yrði stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar að koma Íslandi í gengum niðursveiflu og til viðvarandi stöðugleika. Við erum rétt byrjuð á því stóra verkefni og einbeitt í því. Það er því fjarri lagi að það séu einhverjir brestir í samstarfinu. Það hefur aldrei gengið betur," segir Björgvin. Stjórnarslit ekki í farvatninu Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé enginn einasti fótur fyrir sögusögnum um stjórnarslit. Hún segist einungis hafa heyrt af skrifunum í Financial Times en segist vera á ferðalagi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, um Evrópu vegna EFTA-samstarfsins og segist geta fullyrt að stjórnarslit séu ekki í farvatninu.
Tengdar fréttir Segir orðróm um stjórnarslit á Íslandi vegna efnahagsástands Íslandsvinurinn Robert Wade, prófessor við London School of Economics, segir sterkan orðróm á Íslandi um stjórnarslit og segir Íslendinga nú gjalda óhófs síðustu ára. 1. júlí 2008 22:25 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Segir orðróm um stjórnarslit á Íslandi vegna efnahagsástands Íslandsvinurinn Robert Wade, prófessor við London School of Economics, segir sterkan orðróm á Íslandi um stjórnarslit og segir Íslendinga nú gjalda óhófs síðustu ára. 1. júlí 2008 22:25